Innlent

Halda eftir launum en rukka þjónustugjöldin

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, og aðrir stjórnendur Kópavogsbæjar standa frammi fyrir verkfalli 800 bæjarstarfsmanna.
Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, og aðrir stjórnendur Kópavogsbæjar standa frammi fyrir verkfalli 800 bæjarstarfsmanna. Fréttablaðið/Stefán
Þótt Kópavogsbær hafi um mánaðamótin ákveðið að greiða starfsmönnum aðeins laun fram til 10. nóvember vegna verkfalls bæjarstarfsmanna sem þá kann að hefjast eru notendur þjónustu bæjarins rukkaðir um full gjöld út mánuðinn.

„Ástæðan fyrir því að það voru innheimt full þjónustugjöld er sú það liggur ekki fyrir hvernig þjónustan skerðist. En þegar það liggur fyrir verður skoðað hvernig gjöldin verða leiðrétt,“ segir Sigríður Björg Tómasdóttir, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar.

Um er að ræða gjöld fyrir leikskóla, dægradvöl á borð við frístundaheimili í skólum og fyrir ýmsa þjónustu við eldri borgara og fatlaða.

Viðræðum samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefndar Starfsmannafélags Kópavogs var slitið eftir árangurslausar viðræður í gær.

Það stefnir því að verkfall starfsmanna hefjist á mánudagsmorgun.

Sigríður segir ástæðu viðræðuslitanna vera ófrávíkjanlega kröfu starfsmannafélagsins um að sérákvæði um háskólamenntaða félagsmenn verði áfram hluti af kjarasamningi.

Ákvæðið, sem feli í sér ójafnræði gagnvart stéttarfélögum, varði tæplega tuttugu af um átta hundruð félagsmönnum starfsmannafélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×