Reyndi að keyra á fyrrverandi sambýliskonu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. september 2014 17:28 Frá Litla-Hrauni. Vísir/Heiða
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem gefið er að sök að hafa hent skiptilykli í gegnum rúðu á svefnherbergi fyrrum sambýliskonu sinnar. Í kjölfarið á hann að hafa reynt að keyra á hana í bíl sínum. Konan er sannfærð um að maðurinn hafi ætlað að drepa sig. Maðurinn verður auk þess í einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur. Í greinargerð lögreglustjóra, sem héraðsdómur byggði úrskurð sinn á, kemur fram að líkamsrárásin hafi verið tilkynnt lögreglu klukkan 7:30 aðfaranótt sunnudags. Lögregla hafi komið á vettvang og hitt fyrir konuna og dóttur hennar. Konan var meidd á fæti og hrufluð á hendi. Skýrði konan frá því að maðurinn hefði kastað skiptilykli í gegnum rúðu á svefnherbergi hennar og í kjölfarið hafi hún farið út. Hafi þá maðurinn gert tvær tilraunir til að aka á konuna í bíl sínum. Hann hafi því næst ekið burt á miklum hraða. Dóttir brotaþola sem hafi verið á vettvangi hafi lýst árásinni með sama hætti. Konan kvaðst vera mjög hrædd við kærða, sem er fyrrum sambýlismaður hennar, og var sannfærð um að hann hafi ætlað að drepa sig. Lögreglan fann umræddan bíl við Miðbakka síðar um morguninn og handtók manninn á hóteli í bænum um klukkan 15 á sunnudag. Ákærði hafi játað við skýrslutöku að hafa verið á vettvangi auk þess að hafa kastað skiptilyklinum. Hann neitaði þó að tjá sig um önnur atriði. Í rökstuðningi lögreglu fyrir gæsluvarðhaldi kemur fram að rannsókn málsins sé skammt á veg komin og sé hún á viðkvæmu stigi. Kærði liggi undir rökstuddum grun um að hafa gert lífshættulega atlögu að fyrrum sambýliskonu sinni. „Að mati lögreglu sé gæsluvarðhald nauðsynlegt til þess að unnt verði að vinna að rannsókn málsins. Fyrir liggi að taka þurfi skýrslur af brotaþola og öðrum vitnum sem hafi gefið sig fram á vettvangi. Þá liggi fyrir lögreglu að taka frekari skýrslur af kærða,“ segir í greinargerðinni. Yfirgnæfandi líkur bendi til þess, gangi kærði frjáls ferða sinna, að hann kunni að torvelda rannsókn málsins, s.s. með því að hafa áhrif á framburð vitna.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira