Notaði leynilegan reikning verkmenntaskólans til að draga sér fé Aðalsteinn Kjartansson skrifar 2. desember 2014 14:51 Fjárdrátturinn uppgötvaðist þegar fjármálastjórinn fór í veikindaleyfi. Vísir / Pjetur
Fyrrverandi fjármálastjóri Verkmenntaskólans á Akureyri notaði reikning sem átti að vera óvirkur til að færa peninga frá skólanum inn á eigin reikning. Þetta staðfestir Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari skólans, við Vísi. Konan var í gær dæmd til 15 mánaða fangelsisvistar fyrir að draga sér rúmar 26 milljónir króna frá skólanum. Tólf mánuðir refsingarinnar eru bundnir skilorði. „Þetta uppgötvaðist þannig að þessi starfsmaður hafði verið í veikindaleyfi í svolítinn tíma og skrifstofustjórinn þurfti fyrir bragðið að fara aðeins dýpra ofan í vinnu hennar og þá kom þetta í ljós,“ segir Hjalti Jón aðspurður um hvernig upp komst um fjárdráttinn. „Það var notaður í þetta bankareikningur í Landsbankanum sem átti ekki að vera til. Þetta var gert með einbeittum brotavilja og gert svo vel að hvorki við né ríkisendurskoðun hafði minnsta grun,“ segir hann. Reikningurinn sem um ræðir er gamall reikningur sem átti að vera búið að eyða. Hjali segir málið hafa verið áfall fyrir samstarfsmenn konunnar og alla vera mjög slegna yfir glæpnum. „Þetta var mjög mikið áfall fyrir alla,“ segir hann. „Við höfum unnið þetta mál í samráði við ríkisendurskoðun og þetta kom þeim jafn mikið í opna skjöldu og okkur.“ Konan játaði brotið skýlaust eftir að gengið var á hana. Henni var umsvifalaust vikið frá störfum.
Tengdar fréttir Fjármálastjóri í framhaldsskóla dæmdur fyrir fjárdrátt Millifærði fé af reikningi Verkmenntaskólans á Akureyri og inn á eigin reikning. 1. desember 2014 14:58 Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira
Fjármálastjóri í framhaldsskóla dæmdur fyrir fjárdrátt Millifærði fé af reikningi Verkmenntaskólans á Akureyri og inn á eigin reikning. 1. desember 2014 14:58