Svipaður samningi grunnskólakennara Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 26. nóvember 2014 07:00 Inga Rún Ólafsdóttir
Kennsla í tónlistarskólum hófst að nýju í gær eftir um fimm vikna verkfall tónlistarskólakennara. Samningarnir, sem undirritaðir voru klukkan hálfsex í gærmorgun eftir um 16 klukkustunda langan samningafund hjá Ríkissáttasemjara, eru sambærilegir við aðra samninga sem gerðir hafa verið við kennara, að því er Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga, greinir frá. Á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga var greint frá því fyrir helgi að tónlistarskólakennarar hefðu krafist hærri launa en leik- og grunnskólakennarar eða launahækkana sem næmu um 21 prósenti. Slíkt væri óásættanlegt. Tónlistarskólakennarar lögðu til nýja nálgun í fyrradag, að því er segir á heimasíðu Kennarasambands Íslands. Inga Rún vill ekki greina frá efnisatriðum nýja samningsins þar sem hann hafi ekki verið kynntur tónlistarskólakennurum. Nýi kjarasamningurinn gildir frá 1. nóvember til loka október á næsta ári. Þar sem atkvæðagreiðsla um leiðarvísi um vinnumat og breytingar á kjarasamningi grunnskólakennara verður í febrúar á næsta ári var ákveðið að gera kjarasamning við tónlistarskólakennara til skamms tíma. „Við erum ekki að fara með aðra kennarasamninga lengra fyrr en það kemur í ljós hvort framhald verður á samningum við grunnskólakennara. Þetta hangir allt saman,“ segir Inga Rún.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira