Engin efnisbreyting verið gerð Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. nóvember 2014 07:00 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, gagnrýnir skattabreytingar stjórnvalda. Fréttablaðið/Vilhelm „
Hvað þetta frumvarp varðar þá sé ég ekki neina efnisbreytingu sem kemur til móts við þá gagnrýni að það stendur áfram til að hækka verð á öllum matvælum,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar að hækka neðra þrep virðisaukaskatts í ellefu prósent en ekki tólf prósent. „Það að fara í ellefu prósent en ekki tólf sé ég ekki sem neina efnisbreytingu. Það er enn þá gert ráð fyrir að tekjuöflun vegna niðurfellingar vörugjalda verði með hækkun matarskatts,“ segir Gylfi. Gylfi bendir á að Bjarni Benediktsson hafi kynnt þær fyrirætlanir að fara með virðisaukaskattsþrepið fljótlega upp í fjórtán prósent í áföngum. Gylfi vill vita hvort þau áform að fara í ellefu prósent en ekki tólf feli í sér að menn séu núna að falla frá því lokatakmarki að fara í fjórtán prósent. Bjarni Benediktsson sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær, að með því að fara í ellefu prósent en ekki tólf prósent sé verið að gefa eftir rétt rúmlega tvo milljarða af skatttekjum. „Við erum að halda okkur við þá stóru kerfisbreytingu sem er að draga úr muninum milli þrepanna, draga úr þessari gjá sem er á milli þrepanna,“ segir Bjarni. Þá verði vörugjöldin felld niður og það hafi enn jákvæðari áhrif á kaupmátt, ráðstöfunartekjur og verðlag í landinu.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira