Innlent

Útsvarstekjur lækkar verulega í Vestmannaeyjum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Elliðið Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja.
Elliðið Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja.
Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2015 var lögð fyrir á fundi bæjarstjórnar í gær.

Áætlunin gerir ráð fyrir að útsvarstekjur lækki verulega milli ára og fari úr 1.928 milljónum í 1.720 milljónir en þetta kemur fram í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.

Í tilkynningunni segir að ástæðan fyrir þessari gríðarlegu tekjuskerðingu hafi komið í kjölfar þess að útgerðum hafi fækkað og þar með störfum tengdum sjávarútvegi.

„Í því samhengi má nefna að allar líkur eru fyrir því að tekjuáætlun fyrir árið 2014 (1.928 milljónir) náist ekki. Í lok október vantaði enn útsvar upp á 448 milljónir til að ná áætlun og vandséð að það náist,“ segir í tilkynningunni.

Áætlunin gerir þó ráð fyrir að rekstrarafgangur á árinu verði 140 milljónir í A-hluta og 176 í samstæðu.

Reiknað er með því að veltufé sveitarsjóðs frá rekstri verði jákvætt um rúmar 366 milljónir en það var áætlað 436 milljónir kr. fyrir árið 2014 og hafði þá lækkað frá 2009 þegar það var 487 milljónir.

Skuldahlutfall sveitarsjóðs er 99% og eiginfjárhlutfall 67%. Skuldahlutfall að frádregnu handbæru fé er hinsvegar 18% fyrir sveitarsjóð og 41% fyrir samstæðu.

„Af öllu framansögðu má ljóst vera að rekstur Vestmannaeyjabæjar er að þyngjast og blikur á lofti. Hafi einhverjum dottið í huga að það hefði ekki áhrif á viðkomu sveitarfélagsins að leggja sérstakan skatt á grundvallar atvinnuveginn sem nemur rúmlega 1,7 milljarði (rúmlega 400 þúsund á hvern íbúa) þá sýna rekstrartölu Vestmannaeyjabæjar annan veruleika,“ segir í tilkynningunni.

Álögur á sjávarútveg hafi fækkað útgerðum, þjappað aflaheimildum saman á færri hendur og fækkað störfum.

„Þá hafa opinber störf verið að flytjast í talsverðu mæli til Reykjavíkur og má sem dæmi nefna að í stað búsetra lækna er þjónusta nú í vaxandi mæli veitt af farandlæknum sem ekki greiða útsvar til Vestmannaeyja né heldur taka annan þátt í viðhaldi samfélagsins í Eyjum. Áætlunin verður tekin til seinni umræðu í bæjarstjórn þann 27. nóvember næstkomandi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×