Jónatan Garðarsson tónlistarsérfræðingur og rokksögukennariVísir/Vilhelm
Hálf öld er liðin frá því að fyrsta plata SG-hljómplatna kom út. Það var í júní 1964, en síðasta platan kom út tuttugu árum síðar í árslok 1984. Fimmtíu árum eftir að Svavar Gestsson hóf hljómplötuútgáfu eru mörg þeirra laga sem komu út undir merkjum SG-hljómplatna ennþá vinsæl.
„Við hefðum getað fyllt heila safnplötu með hverjum flytjanda á nýju plötunni, það er svo mikið af flottum listamönnum þarna,“ segir Jónatan Garðarsson, tónlistarsérfræðingur og rokksögukennari, en hann tók þátt í að velja lögin á safnplötuna sem kom út á vegum Senu fyrir skömmu.
Svavar GestsÁ safnplötunni SG-hljómplötur er að finna 75 bráðskemmtileg dægurlög af útgáfum SG-hljómplatna. Listamenn á borð við Fjórtán fóstbræður, Þorvald Halldórsson, Helenu Eyjólfsdóttur, Savanna tríóið, Þrjú á palli, Ómar Ragnarsson, Sextett Ólafs Gauks og Svanhildi, Hauk Morthens, Ellý og Villa Vilhjálms, Ragnar Bjarnason, Hljóma og fleiri má finna á plötunni.
„Þetta safn sýnir hversu fjölbreytt tónlistin var sem Svavar Gests kaus að gefa út. Hann vann ómetanlegt brautryðjanda- og hugsjónastarf sem seint verður fullþakkað,“ útskýrir Jónatan.