Karlmaður fróaði sér fyrir framan 14 ára dreng í gufuklefa Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. nóvember 2014 11:36 Maðurinn braut gegn drengnum í gufuklefa sundlaugar. Vísir/Getty
Hæstiréttur hefur staðfest 8 mánaða óskilorðsbundinn fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára dreng. Brotið áttu sér stað í mars á síðasta ári. Skýrsla var tekinn af drengnum í Barnahúsi og aftur fyrir dómi. Lýsti drengurinn málsatvikum sem svo að hann hafi verið nýbúinn á sundæfingu þegar hann fór ásamt fjölmörgum öðrum unglingum í gufuna. Þau fóru síðan en hann ákvað að vera um kyrrt og slaka aðeins lengur á. Hann hafi þá verið einn inni í klefanum ásamt tveimur öðrum mönnum. Annar þeirra fór síðan fljótlega út en drengurinn hafi ákveðið að liggja í smástund í viðbót. Þá hafi maðurinn farið að spjalla við hann. Drengurinn hafi svo tekið eftir því þegar hann stóð upp og ætlaði að fara að maðurinn var að fróa sér. Hann hafi farið með höndina inn fyrir sundbuxur sínar og tekið kynfæri sín út. Drengnum fannst þetta mjög óviðeigandi og hélt í fyrstu að hann væri að sjá eitthvað vitlaust. Þegar hann var svo að ganga út spratt maðurinn upp, gengið að drengnum, gripið um axlir hans og káfað á kynfærum hans utanklæða. Þá hafi hann boðið drengnum tott. Drengurinn kvaðst ekki hafa vitað hvort maðurinn hafi verið að bjóðast til að totta drenginn eða hvort hann vildi að drengurinn myndi totta sig. Drengurinn fór svo út og greindi vinum sínum, sem enn voru í sundi, frá því sem gerst hafði. Hann var í miklu sjokki. Vinir drengsins hvöttu hann til að segja sundlaugarverði frá brotinu, sem hann og gerði. Kallað vart til lögreglu sem kom stuttu síðar. Maðurinn var í kjölfarið handtekinn og hald lagt á tölvu hans. Þar fannst ein ljósmynd og fimm myndbönd sem sýndu barnaklám.Ljósmyndir úr eftirlitsmyndavélum sýndu manninn með „reistan lim“ í heitum potti Maðurinn var bæði ákærður fyrir að hafa brotið á drengnum í gufuklefanum og fyrir vörslu barnakláms. Fyrir dómi játaði maðurinn að hafa barnaklám í fórum sínum en neitaði því að hafa fróað sér fyrir framan drenginn og káfað svo á kynfærum hans. Hann hafi aldrei verið einn í klefanum með drengnum. Það var því orð gegn orði varðandi það sem gerðist þar sem engin vitni voru að brotinu. Dómurinn mat framburð mannsins ótrúverðugan að öllu leyti þar sem hann stangaðist á við framburð fjölda vitna sem staðfestu meðal annars að maðurinn og drengurinn hafi verið einir í gufuklefanum þegar brotin áttu sér stað. Þá voru einnig lagðar fram ljósmyndir úr eftirlitsmyndavélum laugarinnar sem sýndu manninn sitja innan um unglingana í heitum potti. Á myndunum virðist maðurinn vera með „reistan lim“, eins og það er orðað í dómnum. Framburður drengsins var hins vegar talinn stöðugur og trúverðugur, auk þess sem hann var í samræmi við framburð vitna, meðal annars frá fulltrúa Barnahúss. Maðurinn var því bæði dæmdur fyrir kynferðisbrotið og vörslu barnakláms. Hæfileg refsing hans var metinn 8 mánaða fangelsi. Ekki þótti rétt að skilorðsbinda dóminn að hluta eða heild þar sem maðurinn þar sem maðurinn hafði áður verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir blygðunarsemisbrot og umferðarlagabrot. Sá dómur hafði ítrekunaráhrif. Þá var hann dæmdur til greiðslu alls sakakostnaðar og drengnum miskabætur. Þá var tölva hans gerð upptæk. Dóminn í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira