Erlent

Skotbardagar í Slóvíansk

Úkraínski herinn hefur hafið stórsókn gegn aðskilnaðarsinnum í borginni Slóvíansk í austurhluta landsins.

Herþyrlur sveima yfir borginni og þá greina erlendar fréttastofur frá því að skothvellir og sprengingar hafi heyrst í sumum hverfum borgarinnar. Aðskilnaðarsinnar hafa tekið yfir fjölmargar opinbera byggingar í austurhluta landsins á undanförnum vikum og hefur það reynst erfitt fyrir stjórnvöld í Kænugarði að stilla til friðar.

Í gær ákvað Olexander Turchynov starfandi forseti landsins að taka aftur upp herskyldu til að styrkja varnir landsins en hún var afnumin fyrr á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×