Innlent

Gamlárskvöld annasamt á bráðamóttökunni

Gamlársdagur er einn annasamasti dagur ársins á Bráðamóttöku Landspítalans og er auka mannskapur á vakt í kvöld og í nótt vegna þess. Yfirlæknir segir að dregið hafi úr slysum hjá börnum og unglingum síðust ár en þau aukist hjá þeim fullorðnu. 

Þegar fréttamaður kom á bráðamóttöku Landspítalans í morgun hafði þegar einn komið inn vegna flugeldaslyss. Starfsfólk gerir ráð fyrir að annir fari vaxandi með kvöldinu og nóttinni. Flugeldaslys á gamlárskvöld hafa verið um þrjátíu síðustu ár, þar af eitt til tvö alvarleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×