Innlent

Aldrei fleiri í Gamlárshlaupi ÍR

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Sigurvegarar í kvennaflokki.
Sigurvegarar í kvennaflokki.
Gamlárshlaup ÍR var haldið í 39. sinn í dag. Hlaupið er á meðal stærstu hlaupaviðburða landsins og ávallt ríkir mikil gleði og stemning í hlaupinu. Sú hefð hefur skapast að hlauparar mæta í búningum sem setja sinn svip á hlaupið.

Hlaupið hófst og lauk við Hörpu í Reykjavík en alls voru 1275 hlauparar skráðir til leiks. Aðeins einu sinni hafa þátttakendur farið yfir 1000 en það var árið 2010 og er þetta því met þátttaka. Kjöraðstæður voru á hlaupabrautinni og veður gott.

Sigurvegarar í karlaflokki.
Úrslitin eru eftirfarandi:

Karlaflokkur:  

1. Arnar Pétursson - Sportís - Compressport - ÍR - 00:32:32

2. Ingvar Hjartsson - Fjölnir - 00:33:47    

3. Daníel Freyr Garðarsson  - 00:34:05

Kvennaflokkur:

1. Arndís Ýr Hafþórsdóttir - Fjölnir - 00:37:00    

2. Andrea Kolbeinsdóttir - ÍR - 00:38:45    

3. Guðlaug Edda Hannesdóttir - Fjölnir - 00:39:23   




Fleiri fréttir

Sjá meira


×