Biður Færeyinga afsökunar og vill að Egill Helga bjargi málunum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. desember 2014 14:12 Andri Freyr ásamt Dabba Magg hljóðmanni í Færeyjum. Eiður Svanberg og Egill Helga til hægri.
Eiður Svanberg Guðnason verður seint talinn til aðdáenda sjónvarps- og útvarpsmannsins Andra Freys Viðarssonar. Færeyjarflandur Andra Freys fær á baukinn í nýjasta pistli sendiherrans fyrrverandi. Eiður var á sínum tíma aðalræðismaður Íslands í Þórshöfn og þekkir því vel til í Færeyjum. Ætti því ekki að koma á óvart að Eiður hefur skoðun á ferðalagi Andra Freys. Lokaþátturinn var á dagskrá RÚV í gær. „Lokið er afar misheppnuðum Andraflandursþáttum um Færeyjar. Lokaþátturinn snerist mikið um að staupa sig. Kjánalegt var að heyra verslun Andreasar í Vágsbotni kallaða Andr. og okkur sagt að hún bæri eiginlega nafn umsjónarmanns Flandursins!!!“ segir í pistli Eiðs. Hann bendir á að skiltið á umræddu húsi verslunarinnar, sem á standi Andr., sé skammstöfun. „Umsjónarmaður hefur ef til vill ekki skilið það. Kappróðurinn á Ólafsvöku var kallaður árabátakeppni og talað var um Ólaf Noregskonung. Hvaða Ólaf? Góður þulur hefur fengið vondan texta til að flytja okkur í þessum þáttum.“Vill Egil Helga í fótspor Andra í Færeyjum Eiður segist ekki ætla að hafa um þáttinn fleiri orð „en biður færeyska vini sína afsökunar á þessu sjónvarpsefni,sem ekki gerði mannlífi og menningu í Færeyjum nein skil svo sem verðugt væri.“ Þá spyr Eiður hve miklum fjármunum hafi verið varið í þættina og setur í samhengi við að fram hafi komið á dögunum að þættirnir Óskalög þjóðarinnar hafi kostað RÚV um 35 milljónir króna. Eiður, eða Molaskrifari eins og hann titlar sjálfan sig í pistlum sínum, slær því upp að þátturinn hljóti að hafa verið keyptur óséður. Vonast hann til þess að Egill Helgason verði gerður út af örkunni og geri nýja þáttaröð sem meira vit verði í. Egill fór einmitt á vit ævintýranna í Kanada og gerði sjónvarpsþáttaröð líkt og Andri Freyr hafði áður gert. „Egill apar eftir Andra á flandri“ var fyrirsögn á frétt Nútímans þar sem bent var á hve líkir þættirnir væru að frátöldum þáttarstjórnendunum. Spannst mikil umræða um þættina í kjölfarið þar sem sjónvarpsmaðurinn Helgi Seljan hélt uppi vörnum fyrir Andra. Það var því óvænt útspil á dögunum þegar Eiður hrósaði Helga fyrir frammistöðu sína í Kastljósi þegar fjallað var um Vegagerðina. „Furðu lostinn fylgdist Molaskrifari með úttekt Helga Seljans og starfsfélaga hans í Kastljósi í gærkvöldi (16.12.2014) á vafasömum (að ekki sé meira sagt) viðskiptaháttum, sem viðgengist hafa hjá Vegagerðinni. Þetta var Kastljós eins og það á að vera. Takk og hrós“
Tengdar fréttir Seljan og Svanberg hnakkrífast um Andra Frey Helgi Seljan og Eiður Svanberg Guðnason lentu í harkalegri rimmu á netinu en ásteytingarsteinninn er Andri Freyr Viðarsson. 15. október 2014 15:17 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Sjá meira
Seljan og Svanberg hnakkrífast um Andra Frey Helgi Seljan og Eiður Svanberg Guðnason lentu í harkalegri rimmu á netinu en ásteytingarsteinninn er Andri Freyr Viðarsson. 15. október 2014 15:17