Innlent

GPS tækið vísaði ferðamönnum á Nesjavallaleið sem er lokuð

Björgunarsveitarmenn þurftu að aðstoða tvo erlenda ferðamenn sem höfðu fest bíl sinn á Nesjavallaleið upp úr miðnætti, en leiðin er merkt lokuð. Fólkið sem var á leið frá Reykjavík og ætlaði í Hótelið á Nesjavöllum, bað GPS tækið í bílaleigubílnum um leiðbeiningar um stystu leið þangað og vísaði tækið fólkinu á Nesjavallaleiðina.

Ekkert amaði að fólkinu. Björgunarsveitarmenn þurftu líka að aðstoða fólk í Oddskarði og á Mývatnsöræfum, en engan sakaði í þeim tilvikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×