Karlmaður réðst á sambýliskonu sína Heimir Már Pétursson skrifar 24. desember 2014 09:07 Verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru af ýmsum toga aðfaranótt aðfangadags. Vísir/Valli
Fertugur karlmaður var handtekinn í heimahúsi eftir að hafa ráðist á sambýliskonu sína í austurborginni um klukkan hálf tólf í gærkvöldi og vistaður í fangageymslu. Maðurinn var verulega ölvaður að sögn lögreglu. Konan var flutt með sjúkrabifreið á slysadeild en ekki er vitað nánar um meiðsl hennar. Erlendir ferðamenn á nokkrum bílaleigubílum hugðust skoða norðurljósin urðu strandaglópar á Þingvallavegi við Sjkálafellsafleggjarann seint í gærkvöldi. Ferðamennirnir lögðu öllum bílunum á snjóbreiðu við veginn. Ekki vildi betur til en svo að bílarnir festust flestir. Þurfti fólkið að vera þarna í nokkurn tíma eða þangað til bílaleigan sem þau höfðu verslað við kom með dráttarbíl og bjargaði málunum. Upp úr klukkan fjögur í nótt var kveikt í dagblöðum í stigahúsi við Blikahóla. Íbúar höfðu slökkt eldinn sjálfir þegar lögregla kom á staðinn. Ekki er vitað um skemmdir eða hverjir voru þarna að verki. Um klukkan eitt í nótt veittu lögreglumenn á eftirlitsferð athygli bifreið sem ekið var gegn rauðu ljósi á Reykjanesbraut. Í bifreiðinni voru fjögur ungmenni þar af þrjú undir 18 ára aldri. Kannabislykt fannst í bílnum og viðurkenndi einn farþeginn að eiga efnin. Lögregla sendi tilkynning til barnaverndar vegna málsins. Ökumaðurinn var ekki undir áhrifum fíkniefna. Þá var karlmaður tekinn úr umferð eftir að hafa ekið bifreið á Suðurgötu undir áhrifum kannabis að sögn lögreglu.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Sjá meira