Milljarður sparist með breyttu bótakerfi Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 27. desember 2014 20:49
Sigurður Bessason formaður Eflingar segir að aldrei í sögunni hafi stjórnvöld farið í jafn vanhugsaðar og hættulegar aðgerðir gegn atvinnulausum. Stórum hópi fólks sé vísað út á guð og gaddinn með nokkra daga fyrirvara. Sigurður segir að þessar breytingar hafi verið gerðar þrátt fyrir aðvaranir og ítrekuð mótmæli verkalýðshreyfingarinnar. Formaður velferðarnefndar Reykjavíkur segir að ríkið sé að velta um einum milljarði yfir á borgina með breytingum á atvinnuleysisbótum. „Þessi kostnaður sem ríkið sparar sér er um einn milljarður króna á landsvísu. Þetta verða um 1500 manns sem detta af bótum og við gerum ráð fyrir að um tólfhundruð lendi á borginni, þar af um 500 manns strax núna 1. janúar. Fjárhagsaðstoðin er aðeins lægri en atvinnuleysisbætur en það munar ekki miklu þar á,“ segir Elín Sigurðardóttir, formaður velferðarnefndar. „Mér hugnast þetta alveg hryllilega. Þetta er engu líkt. Það hafa áður verið gerðar breytingar á atvinnuleysisbótakerfinu en þá var það gert með góðum fyrirvara. Þá sáu menn hvert stefndi og Reykjavíkurborg gat gert ráðstafanir þar sem um helmingur átti rétt á bótum. Hinir urðu einfaldlega undir,“ segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar. Sigurður bætir því við að breytingarnar núna séu gerðar með enn verri og harkalegri hætti en áður. Fólk hafi fengið bréf með tíu daga fyrirvara, rétt fyrir áramót, um að réttur þeirra til bóta sé enginn. „Stjórnmálamenn virðast ekki hugsa það þannig að þarna séu einstaklingar undir heldur eingöngu peningar sem hægt sé að spara með þessum hætti. Það er klárt mál að fyrir hluta þessa hóps er ekkert sem bíður. Þessi áramót munu líða hjá þeim og síðan tekur við alger óvissutími,“ segir Sigurður.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Sjá meira