Fólki hleypt frítt í Bláfjöll Jóhann Óli Eiðsson skrifar 27. desember 2014 21:58 Þessar stöllur voru mættar á opnunardegi Bláfjalla fyrr í mánuðinum. vísir/vilhelm „
Þetta er einn af stóru dögunum og það var allt pakkað,“ segir Einar Bjarnason, rekstarstjóri Bláfjalla. „Við eigum eftir að gera daginn upp en það voru fleiri þúsund mætt í brekkurnar. Aðstæður voru eins og best verður á kosið, sjö stiga frost, púðursnjór og vel troðnar brekkur. Það gerist ekki betra.“ Ekki voru þó allir jafn ánægðir með daginn. Einhver bilun varð í kortabúnaði svæðisins og var því brugðið á það ráð að hleypa fólki frítt í fjallið. „Ég mætti skömmu eftir opnun og hafði verið svo forsjáll að kaupa mér kort á N1 áður en ég mætti,“ segir Kristinn Björgúlfsson. „Það var allt stappað og færið geggajð. Félagar mínir mættu á eftir mér án þess að vera með kort og biðu hátt í klukkustund í röð til að kaupa sér aðgang.“ Korteri síðar virðist eitthvað hafa klikkað og þeim sem á eftir þeim komu var hleypt frítt inn. „Það má ekki skilja það svo að mér sé svo annt um peninginn sem fór í aðgangseyrinn. Mér þykir hins vegar skjóta skökku við að þegar við athuguðum hvort hægt væri að bæta við auka degi við kortin okkar þá hafi það ekki verið hægt og ekki stóð til boða að fá endurgreiðslu. Allt á meðan fólki var hleypt inn í halarófum án þess að greiða.“ Einar rekstarstjóri segir að eitthvað smávægilegt vesen hafi komið upp. Þeir ráði ekki yfir veðri, vindum og tæknimálum. Sé veðrið óhagstætt endurgreiði Bláfjöll ekki keypt kort og það sama hafi gilt í þessu tilfelli.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Sjá meira