Lögmaður telur stytt bótaréttindi stangast á við lög Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 29. desember 2014 19:24
Um áramót missa 500 manns bótaréttindi sín þegar bótatíminn styttist úr þremur árum í þrjátíu mánuði. Gísli Tryggvason lögmaður telur ný lög um atvinnuleysistryggingar sem taka gildi um áramótin stangast á við stjórnarskrá. „Já, ég tel að ekki sé hægt að afnema áunnin rétt sem að hefur verið tryggður í lögum alllengi með svona skömmum fyrirvara og þá vísa ég bæði til eignaréttarákvæði stjórnarskrárinnar og ekki síður til 76.greinar stjórnarskrárinnar. Sem kveður á um að öllum skuli tryggður réttur í lögum vegna, til dæmis atvinnuleysis,“ segir Gísli í samtali við Stöð 2. Ástæðuna segir hann vera að þarna sé um harkalega íþyngjandi ákvörðun að ræða. „Ástæðan er sú að þarna er um harkalega íþyngjandi ákvörðun að ræða. Ef að þetta væri ívilnandi ákvörðun, þá væri þetta allt í lagi. Þá gæti enginn farið í mál út af því. En ég tel þetta mjög hæpið út frá þessum stjórnarskrárákvæðum.“ Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra segir áformin hafa legið fyrir í töluvert langan tíma. „Frumvarpið var kynnt núna í haust. Þannig að þessi áform hafa legið fyrir í töluvert langan tíma. Alþingi samþykkti þetta samhliða tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins, þar var náttúrulega farið í gegnum áhrifin og það var einnig farið í gegnum hvað við værum að gera og niðurstaða Alþingis var að samþykkja þetta og telur að sjálfsögðu að það standist lög.“ Forsvarsmenn sveitarfélaganna gagnrýna ríkisstjórnina fyrir að ráðast í lagabreytingar án samráðs. Þær feli í sér þungar byrðar. Eygló bindur hins vegar vonir við samstarf við sveitarfélögin. „Við sjáum það að það fækkar bæði verulega á atvinnuleysisskrá. Við höfum verið að ná góðum árangri í samstarfið við þau sveitarfélög sem eru að hjálpa fólki sem er á fjárhagsaðstoð að fá vinnu. Ég er algjörlega sannfærð um það, að þær tölur sem við erum að sjá núna, eins og Hagstofan er að birta við þurfum að fara aftur til október 2008 til að sjá sambærilegar atvinnuleysistölur að við munum geta h jálpað fólki að fá vinnu.Mér hefur brugðið eilítið við þessa umræðu, hvað fólk hefur talað svolítið kjark úr fólki að það hafi möguleika á að fá vinnu.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Sjá meira