Segja 3.680 milljónir ekki duga Þorbjörn Þórðarson skrifar 16. desember 2014 19:05
Framlög skattgreiðenda til RÚV aukast milli ára bæði á verðlagi hvers árs og föstu verðlagi. Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri segir það mat framkvæmdastjórnar að 3.680 milljónir króna sem RÚV fær frá ríkissjóði á næsta ári dugi ekki fyrir stofnunina til að rækja lögbundið hlutverk sitt. Tilboð hafa borist í útvarpshúsið. Stjórn RÚV og framkvæmdastjórn RÚV telja að stofnunin geti ekki rækt lögbundið hlutverk sitt nema fallið verði frá lækkun útvarpsgjalds og að útvarpsgjaldið renni óskert til hennar en því er meðal annars lýst svona í útvarpslögum: 1. Fjölmiðlaþjónusta Ríkisútvarpsins í almannaþágu hefur það markmið að mæta lýðræðislegum, menningarlegum og samfélagslegum þörfum í íslensku samfélagi með miðlun texta, hljóðs og mynda. 2. Ríkisútvarpið skal framleiða og miðla vönduðu og fjölbreyttu efni með mismunandi tæknilegum aðferðum til allra landsmanna óháð búsetu. Skyldum RÚV er lýst með mjög ítarlegum hætti í lögunum, sem tóku gildi í byrjun þessa árs, en þar eru þó mörg huglæg og matskennd ákvæði. Þannig er RÚV gert skylt að rækja menningarlegt hlutverk sitt með því að: 1. Leggja rækt við íslenska tungu. 2. Kynna sögu þjóðarinnar, menningararfleifð og náttúru. 3. Bjóða fjölbreytt og vandað menningarefni og fjalla um ólík svið menningar, lista og íþrótta á Íslandi og erlendis, auk þess að vera vettvangur umræðna og skoðanaskipta um íslenska menningu og samfélag. Framlög hækka bæði á verðlagi hvers árs og föstu verðlagi RÚV fær 3.680 milljónir króna frá skattgreiðendum á næsta ári og hækkar það um 301 milljón frá því í fjárlögum þessa árs. Framlag ríkissjóðs til RÚV er að hækka bæði þótt miðað sé við verðlag hvers árs og með tilliti til verðlagsbreytinga. Að teknu tilliti til verðlagsbreytinga er framlag ríkisins að hækka um 209 milljónir króna. Ef markmiðin eru lesin í lögunum þá eru þetta mjög matskennd og huglæg ákvæði getur stofnunin ekki náð þessum markmiðum fyrir þessa fjárhæð, 3.680 milljónir? „Það er mat stjórnar og framkvæmdastjórnar RÚV að RÚV muni ekki geta sinnt lögbundnum skyldum, ekki að öllu leyti, nema framlögin verði hærri en til stendur,“ segir Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri.Þarf ekki RÚV bara að sníða sér stakk eftir vexti? „Að sjálfsögðu er eðlilegt að allar stofnanir gæti fyllstu hagkvæmni en eins og þjóðin hefur fylgst með á síðustu árum þá hefur gríðarlega mikið verið hagrætt í starfsemi Ríkisútvarpsins.“ Þess skal getið að löggjafinn getur alltaf tekið ákvörðun að breyta þessum ákvæðum um RÚV í lögunum. Reyndar er vandséð hvaða réttarástand myndi skapast ef þessi matskenndu ákvæði væru talin hafa verið brotin. Hver ætti til dæmis kröfu vegna slíks og að hverjum ætti hann að beina henni? Í raun er um markmiðsyfirlýsingar að ræða og því erfitt að sjá að á þeim sé hægt að byggja tiltekna kröfu um réttindi og skyldur. Magnús Geir ætlar að sitja áfram sem útvarpsstjóri og segist ekki vera að íhuga sína stöðu þótt ekki hafi verið orðið við kröfu um óskert útvarpsgjald. Hann segir að niðurskurður blasi við á nýju ári en vill ekkert segja um uppsagnir, þ.e. hvort og hversu mörgum starfsmönnum verði sagt upp. Hafa fengið tilboð í útvarpshúsið Til skoðunar var að selja útvarpshúsið sem hefur verið verðlagt á 5 milljarða króna. „Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um það en við höfum fengið fjölmargar fyrirspurnir og óskir um viðræður. Líka tilboð, ákveðin tilboð, en við höfum svarað þeim öllum á sama veg. Að það sé ekki tímabært enda þegar að því kemur þá verður það gert í opnu ferli þar sem allir hafa jafnan aðgang að því að gera tilboð.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Sjá meira