Lifandi jólatré eiga undir högg að sækja Stefán Árni Pálsson skrifar 18. desember 2014 11:21 11,7% sögðust ekki ætla að vera með jólatré á sínu heimili í ár. vísir/anton brink
Lifandi jólatré virðast eiga undir högg að sækja hvað vinsældir varðar en MMR kannaði hvort það yrði jólatré á heimilum fólks þessi jólin. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 32,4% ætla að vera með lifandi jólatré í ár, borið saman við 39,1% í desember 2012. Aftur á móti sögðust fleiri ætla að hafa gervitré á sínu heimili þessi jólin. Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 55,9% ætla að vera með gervitré, borið saman við 51,7% í desember 2012. 11,7% sögðust ekki ætla að vera með jólatré á sínu heimili í ár, borið saman við 9,2% í desember 2012. Munur eftir búsetu, tekjum og stuðningi við stjórnmálaflokka. Þeir sem búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu voru líklegri til að segjast ætla að vera með lifandi jólatré en íbúar á landsbyggðinni voru líklegri til að segjast ætla að vera með gervitré. Þannig sögðust 36,4% íbúa á höfuðborgarsvæðinu ætla að vera með lifandi jólatré, borið saman við 26,0% íbúa á landsbyggðinni. 65,9% íbúa á landsbyggðinni sögðust ætla að vera með gervitré á sínu heimili borið saman við 49,6% íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfall þeirra sem sagðist ætla að hafa lifandi jólatré hækkaði með auknum heimilistekjum. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu tekjuhæsta hópnum (milljón á mánuði eða meira) sögðust 50,0% ætla að vera með lifandi jólatré, borið saman við 39,6% í tekjuhópnum 800-999 þúsund á mánuði, 33,0% í tekjuhópnum 600-799 þúsund á mánuði, 31,4% í tekjuhópnum 400-599 þúsund á mánuði, 16,8% í tekjuhópnum 250-399 þúsund á mánuði og 13,3% í tekjulægsta hópnum (undir 250 þúsund á mánuði).mynd/mmrÞeir sem studdu Samfylkinguna voru líklegri en stuðningsmenn annarra flokka til að segjast ætla að vera með lifandi jólatré. Af þeim sem tóku afstöðu og sögðust styðja Samfylkinguna sögðust 45,4% ætla að vera með lifandi jólatré, borið saman við 30,8% Pírata. Stuðningsmenn Pírata voru ólíklegri en aðrir til að segjast ætla að vera með jólatré. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Pírata sögðust 71,1% ætla að vera með jólatré á sínu heimili í ár, borið saman við 96,1% framsóknarmanna.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Fleiri fréttir Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Sjá meira