Ný ásýnd Nýbýlavegar og Auðbrekku Stefán Árni Pálsson skrifar 19. desember 2014 10:35 Myndin sýnir götumynd Hamrabrekku. mynd/aðsend
Auðbrekkusvæðið í Kópavogi fær nýja ásýnd og nýtt hlutverk þegar skipulag svæðisins verður tekið til endurskoðunar en þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Svæðið, sem afmarkast af Nýbýlavegi og Hamraborg, er skilgreint sem þróunarsvæði í Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Haustið 2014 var efnt til hugmyndasamkeppni á vegum Kópavogsbæjar og Lundar fasteignafélags ehf. um framtíðarmöguleika Auðbrekkusvæðisins. Markmiðið var að fá tillögur fagmanna að því hvernig hverfið, sem er afar miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, getur breytt um ásýnd og fengið nýtt hlutverk. ASK arkitektar voru hlutskarpastir í hugmyndasamkeppninni en í hugmyndum ASK eru gerðar tillögur að mögulegu skipulagi svæðisins með blandaða byggð atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Hugmyndir ASK náðu þannig best þeim markmiðum sem lagt var upp með að mati rýnihóps, sem skipaður var starfsmönnum skipulags- og byggingardeildar bæjarins og fasteignafélagsins Lundar ehf. Lundur fasteignafélag ehf. er stærsti fasteignaeigandi á svæðinu og því varð hugmyndasamkeppnin til í samstarfi félagsins og Kópavogsbæjar.Myndin sýnir yfirlitsmynd af hverfinu.mynd/aðsend„Í nýjum hugmyndum um svæðið er meðal annars fyrrum athafnasvæði Toyota tekið til gagngerrar endurskoðunar. Hér mun verða til spennandi hverfi þar sem fléttast saman íbúabyggð og atvinnusvæði. Breytingin er þegar hafin eins og sést á Nýbýlavegi þar sem sprottið hafa upp verslanir og veitingastaðir en í væntanlegu deiliskipulagi munum við taka skrefið enn lengra. Í Auðbrekkunni munu til dæmis verða til íbúðir í fyrrum atvinnuhúsnæði, þar sem er hátt til lofts og vítt til veggja, líkt og þekkist í mörgum borgum erlendis,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar. Næsta skref í framtíðarmótun svæðisins við Nýbýlaveg og Auðbrekku er að kynna niðurstöður hugmyndasamkeppninnar fyrir íbúum og hagsmunaaðilum á svæðinu. Efnt verður til fundar með þeim í janúar þar sem farið verður yfir hugmyndir ASK arkitekta og drög að skipulagslýsingu fyrir svæðið kynnt. Að loknum þeim fundi getur vinna við nýtt deiliskipulag svæðisins hafist. Samkeppnin og þær tillögur sem þar komu fram verða öflugur hugmyndabanki fyrir áframhaldandi vinnu við skipulag svæðisins sem unnið verður í góðu samstarfi við alla hagsmunaðila og íbúa. Auk ASK arkitekta voru valdar til þátttöku í hugmyndasamkeppninni arkitektastofunnar H3, KRark, Apparat, T.ark og Yrki. Allar stofurnar skiluðu vel útfærðum en afar ólíkum hugmyndum um framtíð svæðisins.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira