Dagur svarar Sjálfstæðismönnum Stefán Árni Pálsson skrifar 19. desember 2014 13:55 Dagur B. Eggertsson, núverandi borgarstóri. vísir/arnþór „
Í upphafi síðasta kjörtímabils voru tveir bílar í rekstri Reykjavíkurborgar sem voru ætlaðir fyrir borgarstjóra, forseta borgarstjórnar og staðgengla þeirra en hefur nú í hagræðingarskyni verið fækkað í einn.“ Svona hefst svar Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra, við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks um notkun borgarfulltrúa á bifreiðum í eigu Reykjavíkurborgar. Í borgarstjóratíð Jóns Gnarr hafði staðgengill hans, Dagur B. Eggertsson, núverandi borgarstjóri, afnot af bíl borgarstjóra. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að Dagur hafi notið bílafríðinda hjá borginni umfram aðra borgarfulltrúa, þrátt fyrir að hafa haft afnot af tveimur öðrum bifreiðum án þess að formleg ákvörðun hafi verið tekin um það á þar til bærum vettvangi. Á fundi borgarráðs 23. október sl. lögðu borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks fram umrædda fyrirspurn. „Eins og ítrekað hefur komið fram hafði undirritaður afnot af bíl borgarstjóra þegar ég gegndi starfsskyldum sem staðgengill hans. Staðgengilshlutverkið var formgert í samþykkt um stjórn borgarinnar og samþykkt mótatkvæðalaust í tveimur umræðum í borgarstjórn árið 2010 og hlaut staðfestingu sveitarstjórnarráðuneytisins,“ segir Dagur í svari sínu. Dagur segir að aðrir borgarfulltrúar hafi ekki gengt staðgengilshlutverki. „Vorið 2013 hófst tilraunaverkefni á skrifstofu eigna og atvinnuþróunar þar sem starfsmönnum Ráðhúss Reykjavíkur stóð til boða afnot af tveimur rafmagnsbílum fyrir vinnutengdar ferðir. Tilraunaverkefninu var ætlað að leggja grunn að undirbúningi á innleiðingu vistvænnar samgöngustefnu fyrir Reykjavíkurborg og miðaði að því að kynna kosti rafmagnsbíla fyrir starfsfólki. Verkefnið var kynnt fyrir skrifstofustjórum Ráðhúss og starfsmenn voru hvattir til þess að prófa bílana. Líkt og fram hefur komið tók undirritaður þátt í tilraunaverkefninu.“ Þar sem aðeins hafi verið hægt að bóka annan bílinn rafrænt sé ekki til tæmandi yfirlit yfir notkun bílanna en ljóst sé að hún hafi verið óveruleg í tilviki Dags. „Reynslan af rafbílunum er hins vegar góð og margt sem mælir með því að keyptir verði fleiri slíkir bílar til borgarinnar til afnota fyrir starfsfólk. Misskilnings gætir í fyrirspurninni um ákvæði samþykktar um starfskostnað borgarfulltrúa. Í ákvæðum samþykktarinnar um starfskostnað borgarfulltrúa er hvorki gert ráð fyrir kostnaði við rekstur bifreiða né ökutækjastyrk. Ökutækjastyrkur eru þær greiðslur sem launþegi fær frá launagreiðanda fyrir að nota eigin bifreið í þágu launagreiðandans og sjálfur borið kostnað af.“ Dagur segir að í tilvitnaðri grein sé einungis fjallað um greiðslur til að mæta öllum persónulegum starfskostnaði borgarfulltrúa. „Þar eru talin upp í dæmaskyni áskriftir af dagblöðum, bóka- og tímaritakaup, kaupa á efni úr fjölmiðlum, ferða innan höfuðborgarsvæðisins, veitinga, námskeiða- og ráðstefnuhalda o.þ.h. Tilvitnun um ferðir innan höfuðborgarsvæðisins er ekki akstursgreiðsla, ekki kostnaður við rekstur bíls og ekki ökutækjastyrkur enda eru skilyrði í lögum um meðferð slíkra greiðslna.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Sjá meira