Bjarni Ben er vinsælasti ráðherrann Stefán Árni Pálsson skrifar 19. desember 2014 14:35 Bjarni Benediktsson kemur ágætlega út úr könnun Gallup. Vísir/GVA
Mest ánægja mælist með störf Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra en þrír af hverjum tíu sem taka afstöðu eru ánægðir með störf hans. Þetta kemur fram í Þjóðarpúlsi Gallups en ánægja þjóðarinnar með störf ráðherra ríkisstjórnarinnar var könnuð í annað sinn á kjörtímabilinu. Rúmlega 26% þeirra sem taka afstöðu eru ánægðir með störf Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra, ríflega fjórðungur er ánægður með störf Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem forsætisráðherra og um 24% með störf Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Um 22% eru ánægð með störf Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra, ríflega 21% með störf Illuga Gunnarssonar mennta- og menningarmálaráðherra og rúmlega 19% eru ánægð með störf Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra. Tæplega 19% þeirra sem tóku afstöðu voru ánægð með störf Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þáverandi innanríkisráðherra, en hún hefur nú látið af embætti eins og kunnugt er, og rúmlega 18% eru ánægð með störf Sigmundar Davíðs sem dómsmálaráðherra. Loks eru tæplega 17% ánægð með störf Sigurðar Inga Jóhannssonar, bæði sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og sem umhverfis- og auðlindaráðherra.mynd/gallupMest óánægja mældist með störf Hönnu Birnu en ríflega 67% voru óánægð með störf hennar. Ríflega 63% eru óánægð með störf Sigurðar Inga sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, tæplega 62% eru óánægð með störf Sigmundar Davíðs sem forsætisráðherra og nær 58% með störf Sigurðar Inga sem umhverfis- og auðlindaráðherra. Hátt í 57% eru óánægð með störf Gunnars Braga, nær 56% með störf Bjarna og Kristjáns Þórs, og rúmlega 54% með störf Illuga og með störf Sigmundar Davíðs sem dómsmálaráðherra. Loks eru tæplega 43% óánægð með störf Ragnheiðar Elínar og rúm 39% með störf Eyglóar.mynd/gallupMestar breytingar frá mælingu sem gerð var í apríl á þessu ári eru þær að ánægja með störf Kristjáns Þórs heilbrigðisráðherra minnkar um 11 prósentustig og óánægja eykst um 14 prósentustig, og óánægja með störf Hönnu Birnu þáverandi innanríkisráðherra jókst um 15 prósentustig.
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Sjá meira