Óvíst hvort virkjanatillagan er þingtæk Heimir Már Pétursson skrifar 30. nóvember 2014 20:05
Formaður umhverfisnefndar telur að lögin um rammaáætlun séu ekki nógu skýr og vill láta athuga hvort breytingartillaga Jóns Gunnarssonar um forgangsröðun virkjana sé þingtæk. Örlög tillögunnar ráðist að lokum hjá þinginu. Tillaga Jóns Gunnarssonar formanns atvinnuveganefndar í vikunni sem var að líða um að færa sjö virkjunarkosti ásamt Hvammsvirkjun úr biðflokki í nýtingarflokk hefur valdið miklu fjaðrafoki í stjórnarandstöðunni og víðar. Þá virðist að minnsta kosti tímasetning tillögunnar hafa komið framsóknarmönnum á þingi á óvart, eins og umhverfisráðherra staðfesti í fréttum okkar í gærkvöldi. „Ég held að við þurfum að taka umræðu um það í nefndinni hvort að lögin um rammaáætlun séu nægjanlega skýr. Við heyrum ýmis sjónarmið um það hvort að pólitíkin eigi ekki að skipa sér af. Horfum þá um leið á að síðasti umhverfisráðherra breytti tillögum verkefnastjórnar. Svo er athygliverður punktur að mínu mati; hvort að tillögur sem ganga svona mikið lengra en upphaflega tillagan séu í rauninni þingtækar,“ segir Höskuldur Þórhallsson formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Þetta hafi verið rætt í tengslum við náttúruverndarlögin á sínum tíma sem góð samstaða hafi tekist um. Það verði að skoða tillögu formanns atvinnuveganefndar í þessu ljósi. „Já, ég myndi vilja skoða það vegna þess að það skiptir öllu máli ef við ætlum að halda þá sátt sem við höfum náð í þessum málaflokki, í þessari góðu sátt sem við náðum síðasta vetur, skiptir öllu máli að við förum eftir lögunum. En um leið verður líka að vera sátt um það hvað lögin snúast og hvernig ber að túlka þau . Um það myndi ég vilja spyrja færustu sérfræðinga út í,“ segir Höskuldur. Sem formaður umhverfis- og samgöngunefndar vilji hann hlusta á bæði sjónarmið náttúruverndarsinna og þeirra sem telji óhætt að nýta náttúruna á ýmsum sviðum. Þótt framsóknarmenn hafi vitað af hugmyndum Jóns Gunnarssonar hafi tímasetningin komið á óvart. „En nú er þetta orðið að hans tillögu og fer væntanlega í eitthvað umsagnarferli. Ég er ánægður að heyra að hann ætli ekki að flýta sér. Hann ætli að gefa sér langan tíma . Svo skulum við bara sjá hver niðurstaðan verður í atvinnuveganefndinni og svo í framhaldinu af því inni í þinginu,“ segir formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira