Innlent

Óvíst hvort virkjanatillagan er þingtæk

Heimir Már Pétursson skrifar
Formaður umhverfisnefndar telur að lögin um rammaáætlun séu ekki nógu skýr og vill láta athuga hvort breytingartillaga Jóns Gunnarssonar um forgangsröðun virkjana sé þingtæk. Örlög tillögunnar ráðist að lokum hjá þinginu.

Tillaga Jóns Gunnarssonar formanns atvinnuveganefndar í vikunni sem var að líða um að færa sjö virkjunarkosti ásamt Hvammsvirkjun úr biðflokki í nýtingarflokk hefur valdið miklu fjaðrafoki í stjórnarandstöðunni og víðar. Þá virðist að minnsta kosti tímasetning tillögunnar hafa komið framsóknarmönnum á þingi á óvart, eins og umhverfisráðherra staðfesti í fréttum okkar í gærkvöldi.

„Ég held að við þurfum að taka umræðu um það í nefndinni hvort að lögin um rammaáætlun séu nægjanlega skýr. Við heyrum ýmis sjónarmið um það hvort að pólitíkin eigi ekki að skipa sér af. Horfum þá um leið á að síðasti umhverfisráðherra breytti tillögum verkefnastjórnar. Svo er athygliverður punktur að mínu mati; hvort að tillögur sem ganga svona mikið lengra en upphaflega tillagan séu í rauninni þingtækar,“ segir Höskuldur Þórhallsson formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.

Þetta hafi verið rætt í tengslum við náttúruverndarlögin á sínum tíma sem góð samstaða hafi tekist um. Það verði að skoða tillögu formanns atvinnuveganefndar í þessu ljósi.

„Já, ég myndi vilja skoða það vegna þess að það skiptir öllu máli ef við ætlum að halda þá sátt sem við höfum náð í þessum málaflokki, í þessari góðu sátt sem við náðum síðasta vetur, skiptir öllu máli að við förum eftir lögunum. En um leið verður líka að vera sátt um það hvað lögin snúast og hvernig ber að túlka þau . Um það myndi ég vilja spyrja færustu sérfræðinga út í,“ segir Höskuldur.

Sem formaður umhverfis- og samgöngunefndar vilji hann hlusta á bæði sjónarmið náttúruverndarsinna og þeirra sem telji óhætt að nýta náttúruna á ýmsum sviðum. Þótt framsóknarmenn hafi vitað af hugmyndum Jóns Gunnarssonar hafi tímasetningin komið á óvart.

„En nú er þetta orðið að hans tillögu og fer væntanlega í eitthvað umsagnarferli. Ég er ánægður að heyra að hann ætli ekki að flýta sér. Hann ætli að gefa sér langan tíma . Svo skulum við bara sjá hver niðurstaðan verður í atvinnuveganefndinni og svo í framhaldinu af því inni í þinginu,“ segir formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×