Fær milljónir í bætur vegna vinnuslyss Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. nóvember 2014 22:21 Maðurinn var að vinna við uppsetningu á göngupalli við jarðbor þegar að slysið varð.
Hæstiréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli manns sem lenti í vinnuslysi árið 2008 og stefndi vinnuveitanda sínum, Jarðborunum hf. Maðurinn hlaut 15% varanlega örorku vegna slyssins. Héraðsdómur sýknaði Jarðboranir af kröfum mannsins um skaðabætur vegna slyssins og áfrýjaði maðurinn dómnum til Hæstaréttar. Hæstiréttur dæmdi manninum í hag og skulu Jarðboranir greiða honum tæpar 9 milljónir króna í bætur með áföllnum vöxtum og dráttarvöxtum. Slysið varð þegar maðurinn var ásamt vinnufélaga sínum að koma fyrir göngupalli meðfram jarðbor í eigu Jarðborana. Þurftu þeir að losa um einingar, sem voru fastar við hlið glussastöðvar borsins, og leggja þær niður þannig að þær mynduðu göngupall. Maðurinn var að fara upp á eina einingu göngupallsins, sem var búið að leggja niður meðfram bornum, þegar hann greip með hægri hönd í aðra einingu sem átti eftir að leggja niður. Þegar hann tók í þá einingu féll hún hins vegar niður með þeim afleiðingum að vinstri hönd mannsins lenti á milli þeirrar einingar og einingarinnar sem búið var að leggja niður. Það hafi ekki átt að vera hægt þar sem einingin átti að vera föst. Segir í dómi Hæstaréttar að einingin hafi losnað vegna þess að pinni sem hélt henni hrökk skyndilega úr stæði sinu. Það hafi ekki átt að geta gerst nema vegna þess að einhver hafi ekki fest hann á tryggilegan hátt. Hæstiréttur telur sannað, öfugt við Héraðsdóm, að orsakir slyssins megi rekja til saknæmrar vanrækslu starfsmanns eða starfsmanna Jarðborana við að festa umrædda einingu. Fyrir dómi kváðust stefnandi og vinnufélagi hans ekki hafa komið að því verki. Við ákvörðun bóta lá til grundvallar mat sérfræðings í bæklunar-og handarskurðlækningum. Þar kom fram að varanlega örorka mannsins er 15% og að tímabundið atvinnutjón vegna slyssins hafi verið alls 14 mánuðir. Dóminn í heild sinni má sjá hér.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira