Níu á spítala eftir að strætó keyrði í gegnum grindverk í Garðabæ Kjartan Atli Kjartansson og Samúel Karl Ólason skrifa 21. nóvember 2014 09:42
Strætisvagnabílstjóri og átta farþegar voru fluttir á sjúkrahús eftir að bílstjórinn keyrði útaf við Miðhraun í Garðabæ. Svo virðist sem lítil eða engin slys hafi orðið á fólki, en að sögn slökkviliðsmanna voru allir um borð „í sjokki“. Slysið var tilkynnt klukkan tólf mínútur yfir níu.Frá slysstað.Vísir / Björn SveinbjörnssonJafnvel er talið að liðið hafi yfir bílstjórann og hann í kjölfarið keyrt í gegnum grindverk. Allir farþegar um borð voru fluttir á spítala, ásamt bílstjóranum, að sögn Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu. Slökkviliðið sendi tækjabíl og tvo sjúkrabíla á staðinn. Að sögn Reynis Jónssonar, framkvæmdastjóra Strætó, tilkynnti vagnstjórinn málið sjálfur inn til Strætó bs. en farþegi eða vegfarendur höfðu samband við Neyðarlínuna. „Þetta fór eins vel og gat farið í þessum kringumstæðum,“ segir Reynir. „Það brotnuðu allar rúður í vagninum.“ Að hans sögn mun slysið ekki hafa áhrif á starfsemi Strætó í dag. Nú þegar hefur verið sendur nýr strætisvagn á staðinn sem mun fara beint í að keyra þessa leið. „Þetta hefur lítil sem engin áhrif á þjónustuna sem slíka,“ segir hann.Strætisvagninn er illa farinn.Vísir / Þorkell Guðmundsson
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Sjá meira