„Ég hef aldrei orðið vitni að öðru eins hér í Reykjavík“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 22. nóvember 2014 23:28 Maðurinn hljóp á móti umferð á Miklubraut. Vísir/Vilhelm
Keyrt var á vopnaðan mann á Miklubraut í Reykjavík á laugardagskvöld. Vitni að atvikinu sem vill ekki láta nafns síns getið segist aldrei hafa séð annað eins. „Þetta var bara mjög hræðilegt. Ég hef aldrei orðið vitni að öðru eins hér í Reykjavík,“ segir maðurinn. Hann hafði lagt bíl sínum á bílastæði við Miklubraut en mbl.is greindi fyrst frá málinu. „Svo sé ég að það kemur þarna maður hlaupandi á Miklubrautinni á móti umferð. Hann er í hvítum hlírabol, snoðaður og með einhvers konar vopn, sleggju eða eitthvað slíkt. Síðan kemur grár Audi akandi og neglir bara inn í hann. Maðurinn kastast þá á framrúðu bílsins en hann stendur upp og þá er aftur keyrt á hann. Síðan er þessum Audi bara ekið í burtu.“ Hann segir að maðurinn hafi því næst hlaupið inn á bílastæðið. Þar hafi hann reynt að komast inn í bíla sem þar voru og kastað sleggjunni frá sér. „Hann kom þarna að bílnum mínum en hleypur framhjá. Mér sýndist hann vera í annarlegu ástandi og hann gekk eiginlega bara berserksgang þarna. Ég heyrði svo frá vinkonu minni sem var líka í bíl þarna að hann hafi reynt að komast inn í bílinn hennar og hún var dauðhrædd.“ Lögreglan mætti svo á staðinn nokkrum mínútum seinna að sögn vitnisins.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira