Meira fé til heilbrigðis- og menntamála Heimir Már Pétursson skrifar 24. nóvember 2014 13:50
Töluverðu fjármagni verður bætt í heilbrigðismálin og menntamálin samkvæmt tillögum meirihlutans í fjárlaganefnd og ríkið mun greiða meira í mótframlag við lyfjakaup. Þá verður lægra þrep virðisaukaskattsins 11 prósent en ekki tólf eins og fyrirhugað var. Fjárlaagfrumvarpið tekur töluverðum breytingum í meðförum fjárlaganefndar. Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar staðfestir þetta en vill ekki nefna upphæðir í þessum tillögum. „Þær verða teknar fyrir formlega á fundi gjárlaganefndar klukkan tvö á morgun. Já, en ég get staðfest það að það er verið að gefa í í heilbrigðismálunum og það er afar gleðilegt. Þetta sprettur fyrst og fremst af því að það voru vanáætlaðar ríkistekjur í fjárlagafrumvarpinu á sínum tíma þegar það er sett saman í júní, júlí upp á rúmlega átta milljarða. Þannig að það er svigrúm sem við erum glöð með að hafi skapast,“ segir Vigdís. Þarna sé um umtalsverðar upphæðir að ræða. Þá verði einnig sett meira fjármagn í menntamálin en gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. „Og við erum líka að gera tillögu um að þetta komi líka til almennings í formi afsláttar á lyf. Þetta dreifist skemmilega lágrétt á heilbrigðisþjónustuna alla, þetta aukna fé,“ segir Vigdís. Þá er til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd að lægra þrep virðisaukaskatts hækki ekki eins mikið og fyrirhugað var. Skatturinn hækki úr 7 prósentum í 11 prósent en ekki tólf. „Raunverulega er ég komin út fyrir mitt svið því að því þetta er í hinni nefndinni (efnahags- og viðskiptanefnd). En miðað við umfjöllun um málið í dag og í fréttum þá held ég að ég sé ekki að fara yfir á annað svið þó ég staðfesti að virðisaukaskatturinn verður 11 prósent. Neðra þrepið fer upp í 11 prósent í stað tólf prósenta,“ segir Vigdís Hauksdóttir.
Mest lesið Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Innlent Samantekt: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Innlent Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Fleiri fréttir Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Samantekt: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Sjá meira