Birgir Jakobsson nýr landlæknir Stefán Árni Pálsson skrifar 25. nóvember 2014 13:31 Í umsögn hæfnisnefndar um Birgi kemur fram að hann hefur yfirgripsmikla stjórnunarreynslu af sjúkrahúsum í Svíþjóð.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað Birgi Jakobsson í embætti landlæknis til fimm ára, frá 1. janúar 2015. Birgir hefur um langt skeið sinnt stjórnunarstörfum við ýmis sjúkrahús í Svíþjóð, síðast sem forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu. Fimm umsóknir bárust um embætti landlæknis en umsóknarfrestur rann út 31. október síðastliðinn. Sérstök nefnd sem starfar á grundvelli 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu mat hæfni umsækjenda. Niðurstaða hennar var að tveir umsækjendanna væru hæfastir og var Birgir annar þeirra.Geir Gunnlaugsson hefur verið landslæknir.Embættið er skipað til fimm ára í senn og var Geir Gunnlaugsson, núverandi landlæknir, meðal umsækjenda. Auk Geirs og Birgis voru umsækjendur eftirfarandi: Kristjana S. Kjartansdóttir, yfirlæknir hjá Heilsugæslunni í Hamraborg, María Ólafsdóttir, heimilislæknir hjá Heilsugæslunni í Árbæ, og Vilhelmína Haraldsdóttir, sérfræðilæknir á lyflækningasviði Landspítala. Samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu skal landlæknir hafa sérfræðimenntun í læknisfræði, þekkingu á sviði lýðheilsu og víðtæka reynslu eða menntun á sviði stjórnunar. Í umsögn hæfnisnefndar um Birgi kemur fram að hann hefur yfirgripsmikla stjórnunarreynslu af sjúkrahúsum í Svíþjóð sem stjórnandi á mismunandi stjórnunarstigum í 24 ár. Sérgrein Birgis er barnalækningar og árið 1988 lauk hann doktorsprófi við Karolinska Institutet. Hann gegndi um árabil yfirlæknisstöðu á barnadeild Huddinge sjúkrahússins í Stokkhólmi, árið 2003 tók hann við starfi sjúkrahússtjóra við Capio St. Görans sjúkrahússins í Stokkhólmi og frá árinu 2007 hefur hann verið forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi en þar er hann nýhættur störfum.Hefur mikla reynslu af breytingastjórnun Hæfnisnefndin getur þess í umsögn sinni að Birgir hafi mikla reynslu af breytingastjórnun og hæfileika til að fá fólk til að vinna með sér að breytingum. Hann hafi m.a. verið í fararbroddi við endurskipulagningu og stefnumótun á sjúkrahúsþjónustu í Stokkhólmi og við sameiningu Karolinska og Huddinge sjúkrahúsanna og tekið þátt í umfangsmikilli stefnumótun tengdri þeirri saminingu. Birgir á að baki nær aldarfjórðungs reynslu sem stjórnandi á stórum heilbrigðisstofnunum og hefur náð eftirtektarverðum árangri í þeim störfum sínum. Þá hefur hann verið virkur í fræðasamfélaginu og liggja eftir hann á þriðja tug greina í vísindatímaritum, segir m.a. í umsögn hæfnisnefndarinnar. Birgir tekur við embætti landlæknis af Geir Gunnlaugssyni sem hefur gegnt því síðastliðinn fimm ár.
Mest lesið Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Innlent Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Fleiri fréttir Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Sjá meira