Ætlað að styrkja götumynd Borgartúns Atli Ísleifsson skrifar 25. nóvember 2014 15:10 Borgartún hefur tekið miklum breytingum síðustu ár. Vísir/Reykjavíkurborg
Borgarráð hefur samþykkt lýsingu vegna deiliskipulags fyrir lóðirnar númer 18 til 24 við Borgartún og Nóaún 2 til 4. Lýsingin er fyrsta skref í deiliskipulagsferli sem ætlað er styrkja götumynd Borgartúns og bæta borgarrýmin þar. Reiturinn sem um ræðir afmarkast af Borgartúni, Samtúni og Nóatúni. „Með lýsingunni er hafið ferli að því að skoða frekari þróun og uppbyggingarmöguleika lóðanna á reitnum, þar með talið hæðir húsa og nýtingarhlutfall á reitnum. Þá verður bílastæðafyrirkomulag fyrir reitinn í heild sinni skoðað og möguleikar á bílakjöllurum. Markmiðið með fyrirhuguðu deiliskipulagi er að flétta byggð innan reitsins sem eina heild við byggðina við Borgartún og aðliggjandi byggð ekki síst í suður þar sem reiturinn snýr að smágerðri íbúðabyggð,“ segir í tilkynningu frá Reykjvíkurborg. Í lýsingunni segir að ein megináhersla deiliskipulagsáætlunarinnar sé að móta spennandi og eftirsóknarvert atvinnuhúsnæði við Borgartún. „Leiðarljós við gerð deiliskipulags fyrir reitinn verða eftirfarandi: yfirbragð og hæðir byggðar, tenging við nánasta umhverfi, aðgengi og fjölbreytt atvinnuform sem geti tekið breytingum. Eftirfarandi þættir eiga að einkenna skipulag á svæðinu:Gæði byggðar: Í götumynd Borgartúns verður lögð áhersla á 3-5 hæða byggð (efsta hæðin inndregin). Í götumynd Nóatúns verður lögð áhersla á að húshliðar (Borgartún 24) leggist að götu og að horft verði til þeirrar umhverfismótunar og fyrirkomulags sem einkennir Nóatún 4. Að öðru leyti verður lögð áhersla á að byggð innan reitsins lækki og taki mið af smágerðari byggð sunnan hans.Góð byggingarlist: Áhersla verður lögð á góða byggingarlist jafnt sem góðan landslagsarkitektúr, þar sem unnið verði markvisst áfram með umferð gangandi, hjólandi og akandi.Útirými og græn svæði: Fjölbreyttar lausnir almenningsrýma verði nýttar þar sem því verður komið við þar sem áhersla verður lögð á sól, skjól og upplifun.Samgöngur: Vistvænar samgöngur verða í fyrirrúmi, þ.e. umferð gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur. Bílastæði og fyrirkomulag verða í samræmi við borgarmiðað gatnakerfi og heildstæða götumynd en Borgartún hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum þar sem fjölbreyttar samgöngur hafa verið efldar samkvæmt áherslum aðalskipulags Reykjavíkurborgar.Orka og auðlindir: Stuðla að sjálfbærri nýtingu orku og auðlinda, s.s. vatns og rafmagns.Mannvirki: Taka tillit til framþróunar í vistvænni byggingartækni og mannvirkjagerð. Lýsingin var unnin af skipulagsfulltrúa og er aðgengileg á vef umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur ásamt því sem hún verður til sýnis í þjónustuveri Borgartúni 12-14 .Tillaga að deiliskipulagi verður unnin í samráði og samvinnu við helstu hagsmunaaðila og opinbera umsagnaraðila.“Mynd/Reykjavíkurborg
Mest lesið „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent Fangavörður sendur í leyfi Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Erlent Þrjár stúlkur réðust á eina Innlent Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Erlent Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Innlent Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Erlent Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Ellefu í framboði í prófkjöri Pírata Býður sig fram í embætti varaformanns VG Hálfs árs fangelsi fyrir að berja mann með bifhjólakeðju Rúmar sex hundruð milljónir til sjö stjórnmálaflokka Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri Þrjár stúlkur réðust á eina Fangavörður sendur í leyfi Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Miðflokki fatast flugið Vökuliðar frestuðu afgreiðslu á vantrauststillögu Samgöngustofa ógildir skoðanir á gúmmíbjörgunarbátum Tímamót og glæný könnun Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu „Dylgjur um menntastig“: Túlkun afbrotatölfræði innflytjenda þarfnist þekkingar Reykjadalur fær ekki styrki og fellir niður hluta starfsins Guðmundur Ingi í formlegar viðræður við Vor til vinstri Tekinn í tollinum með tíu kíló af ketamíni Reyna að hnýta lausa enda sem allra fyrst Endurnýjuðu gæsluvarðhald yfir grunuðum barnaníðingi Krafa að fá slökkvistöð í bæinn Fjögur ár frá innrás Rússa og milljarðar bætast í ríkiskassann Sólveig Anna furðar sig á kjörum borgarstjóra Lausir endar í Edition-málinu „Við erum að vinna með fólki sem hefur lent í miklum áföllum“ Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Sjá meira