Mikið vatnsveður kemur niður á flugvellinum Samúel Karl Ólason skrifar 26. nóvember 2014 15:43 Flugvöllurinn í Norðfirði er við botn fjarðarins. Vísir/Pjetur
Vegna mikils vatnaveðurs á Austfjörðum að undanförnu hafa vaknað spurningar um flugvöllinn í Norðfirði og hvort hann geti mögulega farið á kaf. „Það hafa verið óvenjulegar aðstæður hérna á Austfjörðum í haust,“ segir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar. „Hérna hefur rignt gríðarlega mikið og á tímabili hafði snjóað líka. Þannig að það komu leysingar líka þegar rigndi.“ Í rigningunni í haust hækkaði yfirborð sem liggur norðan við flugvöllinn mjög og er völlurinn nú blautur. Um er að ræða malarflugbraut. Þá voru gerðar breytingar á frárennsli frá höfninni og hefur það áhrif einnig. „Við erum núna að fara ofan í það hvað hægt sé að gera til að létta á leirunni komi svona vatnavextir aftur. Við erum byrjaðir í þeirri vinnu.“ Að langmestu leyti er flugvöllurinn nýttur fyrir sjúkraflug þar sem fjórðungssjúkrahús Austfjarða er í Norðfirði. Því er mikilvægt að halda vellinum í notkun. „Við munum gera allt sem við getum til þess að það flæði ekki á völlinn. Það rétt slapp núna, en að vísu er hann blautur. Það er búið að vera svo mikið vatnsveður,“ segir Páll. Páll bendir á það að á sama tíma í fyrra var búið að opna skíðasvæði Fjarðabyggðar en nú sé enginn snjór í fjöllunum.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira