Á svipuðum stað og árið 2004 Linda Blöndal skrifar 26. nóvember 2014 19:19
Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans kynnti skýrsluna í dag í Hörpu. Spáin er jákvæð, að hagvöxtur haldi áfram og verði að meðaltali 3,5 prósent til ársins 2017. Verðbbólgan verði að meðaltali rúm 3 prósent til 2017. Atvinnuleysi mun minnka áfram, fasteignverð hækka og byggingakostnaður lækka. Þrjár meginstoðir hagvaxtarins Einkaneyslan mun bera uppi hagvöxtin ásamt fjárfestingum í ferðaþjónustu og sjávarútvegi. Líta þarf til ársins 2000 til að sjá jafn mikla fjárfestingu þar en ellefu togarar upp á 27 milljarða króna verða keyptir til landsins á þremur árum,. Varðandi erlenda fjárfestingu er í spánni gert ráð fyrir erlendri fjárfestingu í kísilverum á Húsavík og í Helguvík eða þeirri stóriðiju sem hefur tryggt sér næga orku.Einkaneyslan vex – nýrri bílar – dýrari raftæki Gangi spáin eftir verður mesti vöxtur í einkaneyslu á tímabilinu frá því árið 2007. Kröftugur vöxtur einkaneyslunnar heldur áfram til 2017. Fólk mun hafa meira á milli handanna vegna skuldaniðurfærslna og skattabreytinga og talið er að neytendur og seljendur séu farnir að haga sér eins og boðuð lækkun vörugjalda sé orðin að veruleika, eins og reifað er í spá Landsbankans. „Það sem veldur kannski mestum áhyggjum er að einkaneyslan vex tiltölulega hratt ef við viljum halda verðstöðugleika til lengri tíma. Þetta mun verða mikið í varanlegum neysluvörum, nýjum bílum og dýrari raftækjum. Sú einkaneysla verður öll innflutt og þar af leiðandi minnka afganginn af vöruskiptum okkar við útlönd á komandi árum”, sagði Daníel í fréttum stöðvar tvö í kvöld. „Engu að síður þá verður einkaneyslan ekki óeðlilega hár hluti af landsframleiðslu í lok spátímans 2017. Hún er kannski bara að vaxa aðeins of hratt”.Kaupmáttur hækkar áfram Kaupmáttur launa hækkar um rúmlega 4 prósent á árinu sem talin er vísbending um að áherslur við gerð síðustu kjarasamninga hafi skilað sér vel. Í spánni er gert ráð fyrir svipuðum hækkunum og í síðustu kjarasamningum en einnig fyrir talsverðu launaskriði.Höfum lent á flestum sviðum „Það má segja að við séum búin að ná lendingu á flestum vígstöðvum, hvað varðar atvinnuleysi, einkaneyslu, gengi krónunnar og verðbólguna. Það má segja að við séum svona komi aftur á byrjunarreit eins og við vorum kannski 2004, rétt áður en þenskuskeiðið fór á fullt flug. Nú ríður á að við lærum eitthvað af mistökum fortíðarinnar”, sagði Daníel einnig.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira