Innlent

Setningu Bréfamaraþons Amnesty aflýst

Bjarki Ármannsson skrifar
Mynd/Íslandsdeild Amnesty
Setningu Bréfamaraþons Íslandsdeildar Amnesty International, sem fyrirhuguð var í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun, hefur verið aflýst vegna veðurs.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Amnesty á Íslandi. Miklu illviðri er spáð á morgun og á mánudag og hefur meðal annars þurft að aflýsa athöfn í kringum tendrun ljósanna á Oslóartrénu á Austurvelli.

Tilkynning Amnesty er svohljóðandi:

Spáð er ofsaveðri í Reykjavík og á landinu öllu á morgun og því hefur sú ákvörðun verið tekin að aflýsa formlegri setningu Bréfamaraþons Amnesty International.

Skrifstofa samtakana mun samkvæmt venju opna dyr sínar þann 6. desember á milli 13 og 18, þar sem gestum gefst kostur á að skrifa undir aðgerðakort er varða tólf einstaklinga og hópa sem sætt hafa grófum mannréttindabrotum víða um heim. Notaleg jólastemming verður í fyrirrúmi á skrifstofu samtakana og boðið verður upp á kaffi og kruðerí. Tónlist flytja Sigríður Thorlacius, ásamt Guðmundi Óskari Guðmundssyni og Svavar Knútur mun einnig flytja nokkur valinkunn lög. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×