Langaði að þakka lækninum fyrir að hafa ekki yfirgefið Ísland Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. nóvember 2014 20:40 Ragnheiður Axel Eyjólfsdóttir vaknaði upp við vondan draum þegar einkenni fimm ára gamals krabbameins gerði vart við sig á dögunum.
Ragnheiður Axel Eyjólfsdóttir greindist með æxli í skjaldkirtli fyrir fimm árum. Óttaslegin um heilsu sína og líf, hrædd um að glata gæðum lífsins og að geta ekki sinnt fjölskyldu sinni, lagði hún traust sitt á heilbrigðisstarfsfólk Landspítalans. Hún fór í skurðaðgerð sem gekk vel. Náði hún fullri heilsu á nokkrum vikum. „Á spítalanum fékk ég einstaka þjónustu og allir sem mig önnuðustu af nærgætni og virðingu,“ segir Ragnheiður í pistli á Facebook-síðu sinni. Í síðustu viku vaknaði hún upp við vondan draum. Sambærileg einkenni og fyrir fimm árum höfðu gert vart við sig. Óttaðist hún að meinið hefði tekið sig upp. „Ég fann fyrir sama ótta að geta ekki séð fyrir fjölskyldunni eða að mögulega væri ég að verða aftur veik en mestur var samt óttin að ég gæti ekki fengið þjónustu. Það var læknaverkfall, læknirinn sem annaðist mig á sínum tíma er fluttur erlendis og Landspítalinn fjársveltur. Ætti ég peninga fyrir meðferð, lyfjum, gæti verið að ég þyrfti að borga til að komast framan í röð eftir aðgerð. Það voru mínar mestu áhyggjur.“ segir Ragnheiður og vísar í verkfallsaðgerðir lækna. Ragnheiður hélt á göngudeild Landspítalans líkt og fyrir fimm árum. „Biðstofan er alveg eins og fyrir fimm árum en stólarnir orðirnir slitnari. Tölvukerfið lá niðri, ritarinn tók hlýlega á móti mér og tjáði mér biluna og endurræsti gamla svarta tölvu. Ég beið þolinmóð en tölvan virkaði ekki og meðan ég beið kom sérfræðingurinn fram og spurði hver væri næsti sjúklingur. Jú það var ég,“ segir Ragnheiður. Hún hafi farið í sama skoðunarherbergi sem hafði ekkert breyst. Sömu tæki voru á staðnum og sami læknir skoðaði hana. Reyndist hún vera með bakflæði en ekki slæmsku í skjaldkirtli. Meðferðin hljóðaði upp á minni kaffidrykkju og minni neysla á sterkum mat og súkkulaði. „Ég þakkaði yndislega lækninum fyrir en var meyr og þakkaði kannski of mikið, sagði að hún væri frábær (sem hún er) langaði að þakka henni fyrir að hafa ekki yfirgefið Ísland og fyrir starfa á spítala sem er hrörlegur, gamaldags en á samt fallegan sjarma og dönsku hönnunarljósin í anddyrinu vísbending um forna velmegun,“ segir Ragnheiður. Hún greiddi svo átta þúsund krónur fyrir heimsóknina og hélt glöð út í daginn. Staðan í heilbrigðiskerfinu var henni ofarlega í huga. „Spítalinn er fjársveltur og í stað þess að bjóða fólkinu í landinu grunnþjónustu þá er ákveða stjórnvöld að setja 72 milljarða í skuldalækkun sem fer beint inn í bankakerfið og þjónar best þeim sem mest eiga. Hvaða land er þetta? Hvar er frelsið? Af hverju er skatthækkun sögð skattalækkun? Af hverju vilja þeir sem stjórna landinu fólkinu ekki vel?“ velti Ragnheiður fyrir sér. „Mig langar ekki að vera hrædd, búa í landi þar sem ég hrædd um að vera skotin með hríðskotabyssu ef ég myndi gera eitthvað af mér, hrædd við að verða veik, hrædd við að einhver í fjölskyldunni verði veikur, hrædd um að eiga ekki fjármuni til að mennta börnin mín. Mig langar að búa á stað þar sem ég hef val um að kaupa osta og mjólkurvörur frá meira en einu görspilltu fyrirtæki, að fólkið í landinu njóti arðs af auðlindunum, þar sem fjárfest er í menningu, listum og skapandi greinum. En mest þó þar sem stjórnmálamönnum þykir vænt um fólkið, allt fólkið.“ Pistil Ragnheiðar í heild sinni má sjá hér að neðan. Post by Ragnheidur Axel Eyjolfsdottir.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira