Innlent

Oslóartréð fellt í dag

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Oslóartréð.
Oslóartréð. vísir/valli
Jólagjöf Oslóarborgar til Reykvíkinga, Oslóartréð, var fellt við hátíðlega athöfn við Östmarka í Osló í dag. Hefð er fyrir því að Oslóarborg gefi Reykvíkingum jólatré sem stendur á Austurvelli yfir aðventu og jólahátíðina.

Carl I. Hagen, fyrrverandi formaður norska Framfararflokksins og núverandi borgarfulltrúi í Osló, ásamt Gunnari Pálssyni sendiherra Íslands, felldu tréð í sameiningu.  Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri felldi tréð í fyrra.

Um 25 voru viðstaddir athöfnina og gæddu þeir sér á hveitibollum og kaffi og sungu jólalög. Jólatréð er 12, metrar á hæð og verða ljósin tendruð á Austurvelli 30. nóvember.   






Fleiri fréttir

Sjá meira


×