Innlent

Sumarbústaður brennur til kaldra kola

Gissur Sigurðsson skrifar
Slökkviliðið stóð í ströngu nú undir morgun.
Slökkviliðið stóð í ströngu nú undir morgun. mynd/þorgeir ólafsson
Sumarbústaður í landi Eyja tvö við Meðalfellsvatn brann til kaldra kola undir morgun.

Slökkviliðið fékk tilkynningu um eldinn klukkan sex í morgun en þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var bústaðurinn alelda, en þá var vitað að hann var mannlaus.

Hvasst var á vettvangi og varð ekki við neitt ráðið, en slökkviliðsmenn björguðu fjórhjóli og kerru úr skúr við bústaðinn.Engar gróðurskemmdir urðu vegna eldsins. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×