Hvað segja íbúar Reykjanesbæjar? Sveinn Arnarsson skrifar 31. október 2014 08:13 Skuldir sliga bæjarsjóð Reykjanesbæjar og mun taka tæpan áratug að ná skuldaviðmiði sveitarfélaga. Fréttablaðið/gva
Íbúar Reykjanesbæjar eru áhyggjufullir yfir stöðu sveitarfélagsins. Fram hefur komið að bæjarstjórn Reykjanesbæjar stendur fyrir miklum fjárhagslegum vandræðum sem mun taka allt að áratug að ná tökum á. Fréttastofa fór á stúfana og ræddi við íbúa sveitarfélagsins um stöðu mála. Fram kom í svörum þeirra að nú þurfi líklega að skera niður og minnka þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Íbúar eru sammála um að hægt sé að komast í gegnum þennan vanda en það muni taka langan tíma. Bæjaryfirvöld hafa gefið það út að grunnþjónusta sveitarfélagsins verði varin með öllum ráðum. Þó þurfi að skera niður í þjónustu sveitarfélagsins um 500 milljónir og auka tekjur bæjarins um 400 milljónir. Þessar 400 milljónir verða líklega sóttar með hærri sköttum og hærri arðgreiðslum frá fyrirtækjum í eigu sveitarfélagsins.Arngrímur Ingimundarson knattspyrnuþjálfari og ferðaþjónustuaðili:„Staðan er ekki eins og best verður á kosið. Við verðum hins vegar að fara að fá atvinnutækifæri í Reykjanesbæ. Það er ekkert verið að gera í atvinnumálum fyrir íbúa sveitarfélagsins. Erlend fyrirtæki eru að yfirtaka flest allt í Leifsstöð og lítið að frétta af álveri í Helguvík. Við megum ekki gleyma að á Reykjanesi er stórbrotin náttúra og verðum við að nýta þau tækifæri sem gefast í ferðaþjónustu. Í sambandi við skuldirnar þá er þetta mjög súrt og fráhrindandi til að fá gott fólk í bæinn.“Guðmundur Hlíðar Björnsson og Jóhanna Pálsdóttir.Guðmundur Hlíðar: „Já, þetta er auðvitað skelfingarástand og það er líklegt að þetta muni hafa einhver áhrif á þjónustu. Við skulum samt vona að íbúar fari ekki frá Keflavík en það getur kannski verið örlítið erfiðara að laða fólk í bæinn.“Jóhanna: „Það fyrsta sem maður veltir fyrir sér er ungt fólk sem er að hefja búskap hérna. Þetta getur auðvitað haft áhrif á það fólk. Vonandi nær sveitarfélagið að leysa þá erfiðleika.“Ragnheiður Ólafsdóttir, snyrtiráðgjafi: „Ég tel mig vera heppna að eiga ekki barn á leikskólaaldri eða grunnskólaaldri. Þessi niðurskurður mun bitna harðast á því fólki. En nú er ljóst að það verður skorið niður og þjónusta skert. Það er leitt að sjá hvernig fyrir bænum er komið. Fyrri meirihluti stóð ekki í stykkinu og fór of geyst í Helguvík að mínu mati. Það er ekki hægt að hefja vinnu við álver og hafa ekki hugmynd um hvaðan orkan á að koma.“Sigurður Ólafsson og Lilja Þorsteinsdóttir, skóarar: Sigurður: „Þjónustan er mjög góð hérna í Reykjanesbæ, hér er frítt í sund og strætó og mjög gott að búa. Þótt þessi skýrsla sé auðvitað kolsvört skiptir máli að koma sér út úr þessu klandri. Ég er viss um að okkur mun takast það verkefni. Það hefur gengið illa í Helguvík og við eigum eftir að sjá ábatann á þeirri framkvæmd.“Lilja:„Það á að vera hægt að skera niður í sveitarfélaginu. Þjónustan er góð en ég hef svo sem ekkert rosalega mikið vit á þessu en ég held að við getum náð árangri með Helguvík.“
Tengdar fréttir Tiltekt boðuð hjá Reykjanesbæ Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar er þakklátur fyrir málefnalegan og góðan íbúafund í Stapa. Þar var sýnt fram á gríðarlega erfiða stöðu sveitarfélagsins og tiltekt boðuð í framhaldinu í bókhaldi Reykjanesbæjar. Gefur fyrri meirihluta ekki góða einkunn fy 31. október 2014 08:30 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Fleiri fréttir Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Sjá meira
Tiltekt boðuð hjá Reykjanesbæ Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar er þakklátur fyrir málefnalegan og góðan íbúafund í Stapa. Þar var sýnt fram á gríðarlega erfiða stöðu sveitarfélagsins og tiltekt boðuð í framhaldinu í bókhaldi Reykjanesbæjar. Gefur fyrri meirihluta ekki góða einkunn fy 31. október 2014 08:30