Tiltekt boðuð hjá Reykjanesbæ Sveinn Arnarsson skrifar 31. október 2014 08:30 Skuldir sliga bæjarsjóð Reykjanesbæjar og mun taka tæpan áratug að ná skuldaviðmiði sveitarfélaga. Fréttablaðið/gva „
Ég er afar þakklátur fyrir það hversu rólegir og yfirvegaðir íbúar Reykjanesbæjar voru á íbúafundinum,“ segir Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, um íbúafund sem haldinn var í Stapa í fyrrakvöld. Á fundinum voru kynntar tvær skýrslur sem sýndu fram á gríðarlega erfiða rekstrarstöðu bæjarfélagsins eftir óráðsíu síðustu tólf ára. Fram kom á fundinum og í skýrslunum að rekstur sveitarfélagsins er ekki sjálfbær og mun ekki ná skuldaviðmiðum nema miklum aðhaldsaðgerðum verði hrint í framkvæmd. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru margir gestir undrandi á því að fyrri meirihluti hafi ekki þurft að svara fyrir bókhaldslegar misgjörðir sínar. Fannst nokkrum fundargestum í Reykjanesbæ þeir hafa sloppið helst til of vel frá fundinum. Um 500 íbúar sóttu fundinn í Stapa og um tvö þúsund til viðbótar horfðu á beint streymi af fundinum á vef Reykjanesbæjar. Skuldir Reykjanesbæjar eru um 40 milljarðar króna. Skuldahlutfall bæjarfélagsins, skuldir sem hlutfall af reglulegum tekjum bæjarins, er um 270%. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum mega sveitarfélög ekki skulda meira en 150% af reglulegum tekjum. Árið 2002 skuldaði Reykjanesbær 8,3 milljarða króna. Sú tala var komin upp í 40 milljarða árið 2013. Frá árinu 2002 til ársins 2013 vantaði í rekstur sveitarfélagsins um 25 milljarða króna til að halda því á réttum kili. Þessir 25 milljarðar sem vantaði upp á voru á tímabilinu fengnir með nýjum lántökum upp á um 12 milljarða og sölu eigna fyrir svipaða upphæð. Að mati skýrsluhöfunda er staða bæjarfélagsins alvarleg og mikilvægt er að taka málin föstum tökum. Nú er svo komið að eignir sveitarfélagsins eru ekki miklar og miklar skuldir sitja eftir á sveitarfélaginu. Á sínum tíma fyrir hrun var Reykjanesbær hluti af eignarhaldsfélaginu Fasteign. Þar sem einkahlutafélagið keypti fasteignir sveitarfélaganna og lánaði þeim aftur. Sjö af tíu skuldugustu sveitarfélögum landsins voru í viðskiptum við þetta einkahlutafélag þar sem þetta módel var notað.Friðjón EinarssonFriðjón segir stöðuna vera slæma en tekur það fram að nú þurfi að láta hendur standa fram úr ermum. „Nú vitum við stöðuna og nú þurfum við að taka erfiðar ákvarðanir um framhaldið. Það er ljóst að við þurfum að hagræða en munum verja grunnþjónustu af öllu afli.“ Friðjón gefur síðasta meirihluta ekki góða einkunn þegar kemur að rekstri bæjarins. „Ég varð bæjarfulltrúi 2010 og á þeim fjórum árum hef ég gagnrýnt harðlega fjárhagsáætlanir fyrri meirihluta á hverju einasta ári. Það kannski lýsir því best hvað mér finnst um þau vinnubrögð sem voru stunduð,“ segir Friðjón. Veigamestu tillögur til að snúa rekstrinum við, fjalla um að lækka launakostnað sveitarfélagsins. Gert er að tillögu að yfirvinnubann verði sett á í Reykjanesbæ og aðeins verði heimil yfirvinna í undantekningartilfellum og þá með samþykki bæjarstjóra eða fjármálastjóra. Einnig er lagt til að laun verði greidd samkvæmt kjarasamningum. Ef um sé að ræða hærri laun vegna óunninnar yfirvinnu verði þeir samningar teknir til endurskoðunar. Að lokum er lagt til að greiðslur bifreiðastyrkja samkvæmt samningum verði teknar til endurskoðunar og aðeins greitt fyrir raunverulegan akstur. KPMG kynnti einnig samantekt sína um leið til að snúa stöðunni við. Sú áætlun nefnist „Sóknin“ þar sem ítarlega er farið yfir hvernig hægt er að bæta stöðu Reykjanesbæjar. Tillögurnar miða að því að skera niður rekstrarkostnað um 500 milljónir króna og auka tekjur bæjarsjóðs um 400 milljónir. Reykjanesbær þurfi um 900 milljónir í aukna framlegð til að bæta hag bæjarins.
Tengdar fréttir Hvað segja íbúar Reykjanesbæjar? Reykjanesbær stendur á tímamótum og þarf að taka til í rekstri bæjarins næsta áratuginn. Fréttastofa spurði íbúa hvernig þeim litist á blikuna. 31. október 2014 08:13 Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fleiri fréttir Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Sjá meira
Hvað segja íbúar Reykjanesbæjar? Reykjanesbær stendur á tímamótum og þarf að taka til í rekstri bæjarins næsta áratuginn. Fréttastofa spurði íbúa hvernig þeim litist á blikuna. 31. október 2014 08:13