"Löglegt en siðlaust“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 31. október 2014 11:25 Allsherjarverkfall starfsmanna Kópavogsbæjar er boðað þann 10. nóvember. Vísir/Vilhelm
Allsherjarverkfall félagsmanna í Starfsmannafélagi Kópavogs (SfK) hefst þann 10. nóvember ef samningar nást ekki. Vegna verkfallsins munu 38 starfsmenn bæjarins sem eru á fyrirframgreiddum launum aðeins fá útborgað nú um mánaðamótin fyrir dagana 1.-9. nóvember. Verði ekki verkfall munu þessir starfsmenn fá borgað það sem vantar upp á fyrir mánuðinn. Bærinn vísar í reglur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um frádrátt launa vegna vinnustöðvunar. Jófríður Hanna Sigfúsdóttir, formaður Starfsmannafélags Kópavogsbæjar, segir þetta kannski löglegt en siðlaust. Hún segir ekki hafa fengið þetta staðfest fyrr en í gær. „Ég var búin að óska margoft eftir því að fá staðfestingu á þessu frá yfirmönnum því maður hafði heyrt þessu fleygt. Ég fékk síðan póst rétt fyrir klukkan17 í gær þar sem þetta var staðfest,“ segir Jófríður í samtali við Vísi. „Mér finnst óskaplega sérkennilegt að það skuli vera tekin ákvörðun um að gera þetta með þessum hætti hér. Ég vísa til kennaraverkfallsins 2004 sem hófst þann 20. september. Þann 1. september lá fyrir að það yrði verkfall en starfsmenn á fyrirframgreiddum launum fengu engu að síður full laun. Það eru auðvitað 10 ár síðan og kannski er búið að breyta reglunum. Þetta er kannski löglegt en siðlaust.“ Deiluaðilar funduðu með ríkissáttasemjara í fyrradag í sitthvoru lagi. Sáttasemjari bar skilaboð á milli. Aðspurð hvort enn beri mikið í milli segir Jófríður: „Já, það má segja það en ég hef trú á að samningar náist áður en verkfall skellur á. Ég bara trúi því ekki að starfsemi bæjarins verði látin lamast.“ Hún býst við að í dag verði næsti fundur í deilunni ákveðinn. Á mánudaginn er vika í að verkfallið eigi að hefjast svo deiluaðilar hafa einungis næstu viku til að ná samningum. Um 800 manns eru í SfK. Á meðal þeirra sem munu fara í verkfall eru starfsmenn sundlauga, ófaglærðir starfsmenn og matráðar á leikskólum, starfsmenn í Dægradvöl í grunnskólum bæjarins, starfsmenn á velferðarsviði og bæjarskrifstofum, svo einhverjir séu nefndir. Það er því ljóst að verkfallið mun hafa víðtæk áhrif. Að sögn Sigríðar Bjargar Tómasdóttur, upplýsingafulltrúa Kópavogsbæjar, er bærinn nú að skoða hvaða áhrif verkfallið muni hafa, komi til þess, á stofnanir bæjarins.
Tengdar fréttir Starfsmenn Kópavogs kjósa um verkfallsaðgerðir Kópavogur segir laun sem félagsmönnum standi til boða hærri en laun sambærilegra starfsmanna Reykjavíkurborgar. 13. október 2014 18:58 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Starfsmenn Kópavogs kjósa um verkfallsaðgerðir Kópavogur segir laun sem félagsmönnum standi til boða hærri en laun sambærilegra starfsmanna Reykjavíkurborgar. 13. október 2014 18:58