Agüero hetjan í borgarslagnum | Sjáðu allt það helsta Anton Ingi Leifsson skrifar 2. nóvember 2014 00:01 Liðsmenn City fagna. vísir/getty
Manchester verður blá næstu vikurnar, en Sergio Aguero tryggði Manchester City sigur á grönnum sínum í United. Markið er tólfta mark Aguero í vetur, en hann hefur verið funheitur. Fyrri hálfleikur var nokkuð fjörugur þrátt fyrir engin mörk. Þeir bláklæddu gerðu tilkall til vítaspyrnu í tvígang ef ekki þrígang í þeim fyrri, en slakur dómari leiksins Michael Oliver lét sér fátt um finnast. Chris Smalling mun ekki minnast þessa leiks á góðan hátt. Hann fékk gult spjald á 31. mínútu þegar hann fór fyrir Joe Hart þegar hann spyrndi boltanum frá marki. Afleit ákvörðun og átta mínútum síðar gerðist hann brotlegur aftur. Hann klippti þá James Milner niður og fékk sitt annað gula spjald og á leið í sturtu. Ekki góð tíðindi fyrir rauðklædda gestina. Staðan var þó markalaus í hálfleik. Eina mark leiksins kom eftir rúmlega klukkutíma leik. Eftir frábæra sókn lagði Gael Clichy boltann á Aguero sem kláraði færið eins og honum einum er lagið. Gestirnir reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin, en allt kom fyrir ekki og Aguero reyndist hetjan. City fer í þriðja sætið með sigrinum, en þeir eru sex stigum á eftir Chelsea sem eru á toppnum. United er í níunda sæti með þrettán stig og róðurinn er þungur þar á bæ.Smalling fær rautt: Það helsta úr fyrri hálfleik: Aguero kemur City yfir:
Spænski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira