Skógræktarmenn deila um Teigsskóg Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. október 2014 14:42 Vegamálastjóri sýnir ráðherra vegamála Teigsskóg á leið þeirra til fundar um samgöngumál á Vestfjörðum í fyrrasumar. Vísir/Daníel
Skógræktarfélag Íslands segir ekki rétt sem Skógræktarfélag Reykjavíkur haldi fram að undirtektir á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands vegna tillögu er varðaði Teigsskóg hafi verið dræmar. Hið rétta sé að umræður hafi verið miklar og ósætti hafi verið með óskýrleika í framsetningu tillögunnar. Vísað er í samþykkt á fundi Skógræktarfélags Reykjavíkur vegna samþykktar Skógræktarfélags Íslands og skógræktarfélaga á Vestfjörðum um teigsskóg. Ranglega er farið með staðreyndir í ályktuninni segja stjórnarmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur. „Fullyrt er í ályktun Skógræktarfélags Reykjavíkur að undirtektir skógræktarmanna við framkominni tillögu á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands hafi verið dræmar. Hið rétta er að miklar umræður spunnust á fundinum um tillöguna og voru fundarmenn ekki á eitt sáttir um hana eins og hún var fram sett. Þótti tillagan nokkuð beinskeytt, auk þess sem fundarmönnum fannst ekki nægjanlega skýrt að skógræktarfélögin á Vestfjörðum stæðu að baki ályktuninni,“ segir í athugasemd Skógræktarfélags Íslands. Tillagan hafi hins vegar verið borin fram af stjórn Skógræktarfélags Íslands vegna óska frá aðildarfélögum Skógræktarfélags Íslands á sunnanverðum Vestfjörðum. „Niðurstaða skógræktarnefndar á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands var sú að leggja til að vísa tillögunni til stjórnar S.Í. og var það samþykkt á aðalfundinum. Það er því rangt eins og fram kemur í ályktun Skógræktarfélags Reykjavíkur að endanleg tillaga, sem fékk umfjöllun og afgreiðslu í stjórn Skógræktarfélags Íslands, sé í andstöðu við vilja aðalfundar,“ segir í athugasemdinni. Þorri fundarmanna hafi hins vegar verið þeirrar skoðunar að nauðsynlegt væri að umorða tillöguna, sem síðar var gert, og hún afgreidd af stjórn Skógræktarfélags Íslands með öllum greiddum atkvæðum, eins og áður er getið. Minnt er á að Skógræktarfélag Íslands séu landssamtök 61 skógræktarfélags víðs vegar um land. Stjórnin leggi sig fram um að hlusta á þau málefni sem heitast brenna á félagsmönnum. „Skógræktarfélag Íslands virðir mismunandi skoðanir og ályktanir einstakra félaga innan vébanda þess. Í því tilviki sem hér er rakið hlustaði stjórn Skógræktarfélag Íslands á raddir skógræktarmanna og fólksins sem býr við erfið samgönguskilyrði á Vestfjörðum og mat það svo að hagsmunir íbúa á svæðinu væru mikilvægari en að lítill hluti, 1% kjarrlendis í Þorskafirði og Teigsskógi, þyrfti að víkja fyrir betri samgöngum á svæðinu.“
Tengdar fréttir Ráðherrar íhuga lög Þrír ráðherrar auk forseta Alþingis hafa sagt opinberlega að þeir vilji kanna setningu sérlaga á vegarlagningu um Teigsskóg á sunnanverðum Vestfjörðum. 23. september 2014 11:00 Skógræktarmenn rífast um vernd Teigsskógar Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún tekur fram að hún styðji ekki yfirlýsingu stjórnar Skógræktarfélags Íslands um vegagerð um Teigsskóg. 16. október 2014 12:30 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Ráðherrar íhuga lög Þrír ráðherrar auk forseta Alþingis hafa sagt opinberlega að þeir vilji kanna setningu sérlaga á vegarlagningu um Teigsskóg á sunnanverðum Vestfjörðum. 23. september 2014 11:00
Skógræktarmenn rífast um vernd Teigsskógar Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún tekur fram að hún styðji ekki yfirlýsingu stjórnar Skógræktarfélags Íslands um vegagerð um Teigsskóg. 16. október 2014 12:30