Innlent

Bangsaspítalinn opnar á sunnudaginn

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir
Lýðheilsufélagi læknanema heldur í samstarfi við fyrstu árs læknanema Bangsaspítalann á Barnaspítala Hringsins næstkomandi sunnudag.

Húsið verður opið frá ellefu um morguninn til fimm síðdegis. Öll börn á aldrinum 3-6 ára eru boðin velkomin en veikir og slasaðir bangsar geta þá farið í allsherjar skoðun.

Alþjóðlegi bangsadagurinn er í dag en hann er haldinn árlega þann 27. október. Á flestum ef ekki öllum leikskólum landsins mæta börnin með bangsa eða önnur tuskudýr í tilefni dagsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×