Innlent

Taka verður tillit til annarra stéttarfélaga þegar samið er við lækna

Hjörtur Hjartarson skrifar
Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra
Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra
Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra vonast til að lausn finnist í kjaradeilu lækna og stjórnvalda sem fyrst.

„Ég tel það skyldu beggja samningsaðila að leita leiða til þess að búa svo um hnúta að við stöndum betur í samkeppni,“ segir Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra.



„Fólk heima í stofu veltir eflaust fyrir sér, afhverju leysir heilbrigðisráðherra ekki bara málið?“



„Ef heilbrigðisráðherra hefði tækin til þess þá væri hann örugglega búinn að því en þetta mál er flóknara en svo.“

Fleiri ráðuneyti komi að samningsgerðinni og þó heilbrigðisráðherra hafi áður sagt að hann telji kröfur réttmætar er það í höndum fjármálaráðuneytisins að ákvarða tilboð um kaup og kjör til lækna.



„Stærsti hlutinn af samningsumboðinu liggur hjá fjármálaráðuneytinu, gengur ekki vel að sannfæra Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra um að setja meiri pening í þetta?“



„Ég bara veit það að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra hefur á þessu fullan skilning en á herðum fjármálaráðherra Íslands hverju sinni hvíla gríðarlegar skyldur. Hann ber ábyrgð gagnvart fleirum en þessu eina stéttarfélagi, hann ber sömuleiðis ábyrgð gagnvart aðilum vinnumarkaðarins og Seðlabankanum um stöðugleika í þjóðfélaginu. Þannig að í því verki verður fjármálaráðherrann, sama hvaða nafn svo sem hann ber, að taka tillit til margra fleiri þátta.“





Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra
En hvar svo sem valdið liggur vill almenningur að deilan leysist og að samið verði við lækna.



„Ég er sammála því að kjör lækna verði að bæta og hef talað fyrir því. Hvernig það er gert er flóknara mál en að hægt sé að slengja því fram með einni handsveiflu. Því miður er veruleikinn ekki sá.“



„Veistu til þess að fjármálaráðherra hafi aukið umboð samninganefndarinnar?“



„Ég þekki það ekki.“



„Kemur til greina að setja lög á lækna?“



„Nei, ekki í mínum huga.“



„Hefur það verið rætt innan ríkisstjórnarinnar?“



„Nei“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×