Gunnar Bragi fundaði með aðstoðarviðskiptaráðherra Bandaríkjanna Stefán Árni Pálsson skrifar 10. október 2014 19:32 Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. Vísir/Kristinn
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fundaði í gær í Washington D.C. í tengslum við ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans, sem gekkst nýverið undir umfangsmiklar skipulagsbreytingar. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. Átti hann fund með Keith Hansen, nýjum varaforseta bankans, þar sem ráðherra ræddi helstu breytingar á starfi bankans og áherslusvið Íslands. Auk þessara funda átti Gunnar Bragi fundi með nýskipuðum framkvæmdastjórum á sviðum orkumála, fiskimála og jafnréttismála en Alþjóðabankinn gegnir lykilhlutverki í íslenskri þróunarsamvinnu. Á fundi ráðherra með Anitu George, nýjum framkvæmdastjóra orkumála, áréttaði Gunnar Bragi mikilvægi alþjóðlegs samstarfs á sviði jarðhitanýtingar. Í máli framkvæmdastjórans kom fram að jarðhitasamstarf Íslands og bankans hafi gífurlega mikla þýðingu. Upphaflegur stuðningur Íslands við verkefnið hafi orðið til þess að Alþjóðabankinn hafi fengið 235 milljónir Bandaríkjadala frá öðrum gjafríkjum til að efla jarðhitanýtingu í þróunarríkjum. Staðfesti framkvæmdastjórinn jafnframt þátttöku bankans í nýstofnuðum samstöðuhópi um jarðhitanýtingu, sem Ísland hefur átt frumkvæði að. Auk funda í Alþjóðabankanum, átti Gunnar Bragi fund með Daniel Mullaney, aðstoðarviðskiptaráðherra Bandaríkjanna, þar sem rætt var um stöðu og næstu skref í fríverslunarviðræðum Bandaríkjanna og Evrópusambandsins sem staðið hafa yfir um nokkurt skeið. Á morgun flytur Gunnar Bragi ávarp fyrir hönd kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á fundi þróunarnefndar Alþjóðabankans.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira