Fótbolti

Sigurganga Tékka heldur áfram

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Borak Dockal fagnar marki.
Borak Dockal fagnar marki. vísir/getty
Tékkland vann þriðja leikinn í röð í I-riðli undankeppni EM 2016 í fótbolta í dag þegar liðið lagði Kasakstan í Astana, 4-2. Þrír leikmenn Sparta frá Prag skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins.

Borek Dockal skoraði það fyrsta á 13. mínútu, David Lafata annað markið á 44. mínútu og Ladislav Krecji kom gestunum í 3-0 á 56. mínútu.

Yuri Logvinenko minnkaði muninn fyrir heimamenn á 84. mínútu og hann skoraði svo aftur eftir hornspyrnu í uppbótartíma, en í millitíðinni skoraði Tomas Necid fjórða mark Tékka. Lokatölur, 4-1.

Kasakstan er með eitt stig eftir þrjá leiki en Tékkar með níu stig á toppi riðilsins. Ísland og Holland mætast í sama riðli í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×