Bíll varð alelda á Nýbýlavegi Aðalsteinn Kjartansson skrifar 8. október 2014 22:16 Slökkviliðið sinnti útkalli á Hverfisgötu í kvöld. Annríki hefur verið hjá þeim síðustu tíma. Vísir / Þorgeir Ólafsson
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þurfti að slökkva eld sem kviknaði í bifreið á Nýbýlavegi í dag. Eldurinn kom upp á meðan bíllinn var á ferð og þurfti ökumaðurinn að stöðva bílinn til að forða sér og barni, sem var farþegi í bílnum, frá skaða. Ekki leið á löngu þar til bíllinn var orðinn alelda en hann gjöreyðilagðist. Engan sakaði en sjúkrabílar voru engu að síður sendir á vettvang til að huga að fólkinu. Ekki þótti ástæða til frekari meðhöndlunar. Þetta segir Sigurður Lárus Sigurðsson, vaktstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Hann segir að annríki hafi verið hjá slökkviliðinu í dag og kvöld. Slökkviliðið var einnig kallað á Hverfisgötu vegna reyks sem sást koma undan þaki. Þegar komið var á staðinn kom í ljós að um var að ræða gufu upp úr niðurfalli í þakrennu. Þá var dælubíll sendur að Vættarskóla þar sem kveikt hafði verið í rusli. Vegfarandi tilkynnti eldinn en náði sjálfur að slökkva hann með slökkvitæki. Unnið er nú að því að slökkva í öllum glæðum. Slökkvilið þurfti einnig að bregðast við hörðum árekstri í Árbæ þar sem þurfti að hreinsa upp olíu.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira