„Eins og nýju strákarnir þori ekki í keppnina“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. september 2014 13:25 Viktor Örn Andrésson fagnar sigri í keppninni í fyrra. Vísir/Valli „
Það er bara eins og þessir nýju strákar þori ekki í keppnina,“ segir Viktor Örn Andrésson, Matreiðslumaður ársins 2013 og Norðurlandameistari 2014. Keppninni Matreiðslumaður ársins árið 2014 var frestað á dögunum vegna ónægrar þátttöku. Aðeins fjórir skráðu sig til leiks. Viktor Örn keppti í þriðja sinn í ár og segir að það sé allur gangur á því hve margir skrái sig til leiks. Það hafi rokkað á milli tíu og tuttugu. Aldrei hafi þó jafnfáir skráð sig og nú. „Ef það eru fjórir þá er ekki einu sinni hægt að hafa forkeppni,“ segir Viktor Örn. Reglurnar í keppninni undanfarin ár hafa verið á þann veg að fimm keppendur komast í úrslit. Viktor Örn er í íslenska kokkalandsliðinu sem stendur í undirbúningi fyrir HM í Lúxemborg í nóvember. Hann ætlaði sér ekki að taka þátt sjálfur því að æfingar landsliðsins skarast á við keppnina. Aðspurður hvort ekki væri frábær undirbúningur fyrir HM að keppa í Matreiðsumanni ársins líkt og knattspyrnulandsliðin spila æfingaleik auk keppnisleika segir Viktor Örn: „Þetta er eins og félagsliðin myndu setja leik á sama tíma og það væru landsliðsæfingar í gangi.“Jakob H. Magnússon.Vísir/STefánMetnaðar- og áhugaleysi Jakob H. Magnússon, matreiðslumeistari og dómari, segist hafa heyrt alls kyns afsakanir fyrir því hve keppendur eru fáir. Tímasetningin sé slæm, erfitt að nálgast hráefnið og önnur verkefni standi í veginum. Hann gefur þó lítið fyrir þær. „Ég held að það sé aðallega metnaðar-, áhuga- og hvatningarleysi um að kenna. Ef kokkar ætla sér að keppa gera þeir það þrátt fyrir allar úrtölur og neikvæðni.“ Jakob segir í pistli á Veitingageiranum að það að keppa í matreiðslukeppni sé frábær og einstök reynsla sem endist út starfsævina hvernig sem fari í keppninni. Af því tilefni rifjaði Jakob upp sögu af áhugasömum kokki sem starfaði á sveitahóteli. Mætti hann með fatið sitt sem þótti frekar gamaldags og lummó. „Hinir þátttakendurnir í hroka sínum pískruðu sín á milli og gerðu góðlátlegt grín að matnum hans,“ rifjar Jakob upp. Eins og í bestu ævintýrum var umræddur kokkur valinn í liðið sem vann síðar til gullverðlauna í alþjóðakeppni í Þýskalandi.Hafliði Halldórsson.Vísir/VilhelmMaður er með fullt hús Viktor Örn segir æfingar fyrir HM í nóvember ganga rosalega vel. Næsta æfing sé á mánudaginn þar sem heitir réttir verða framreiddir. Þá keppir landsliðið einnig í flokki kaldra rétta. Hann á ekkert endilega von á því að taka aftur þátt í keppninni um Matreiðslumann ársins. „Maður er náttúrulega með fullt hús. Maður veit ekki hvort maður eigi að fara í aðrar keppnir,“ segir Viktor Örn hlæjandi en hann varð sem fyrr segir Norðurlandameistari í mars. Auk hans hefur Ragnar Ómarsson orðið Norðurlandameistari en það var árið 2003.Vantar nýjan vettvang Hafliði Halldórsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara sem verið hefur dómari í keppninni undanfarin ár, segir í samtali við RÚV að tímasetningunni sé líklegast um að kenna. Haustið hafi hentað vel en með auknum ferðamannastraumi sé mikið að gera hjá kokkum. Keppnin hefur undanfarin ár verið haldin í húsakynnum Menntaskólans í Kópavogi. Þar geta áhorfendur hins vegar ekki fylgst með kokkunum við störf heldur aðeins virt tilbúna rétti fyrir sér. Því vanti betri vettvang fyrir keppnirnar.
Tengdar fréttir Viktor Örn matreiðslumaður ársins Viktor Örn Andrésson, yfirmatreiðslumaður hjá Bláa lóninu, er matreiðslumaður ársins 2013 en úrslitakeppnin fór fram í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi í dag. 29. september 2013 22:23 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira
Viktor Örn matreiðslumaður ársins Viktor Örn Andrésson, yfirmatreiðslumaður hjá Bláa lóninu, er matreiðslumaður ársins 2013 en úrslitakeppnin fór fram í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi í dag. 29. september 2013 22:23