Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Fjölnir 4-2 | Fyrsti heimasigur Eyjamanna Guðmundur Tómas Sigfússon á Hásteinsvelli skrifar 13. júlí 2014 00:01 Dean Martin og Sigurður Ragnar Eyjólfsson fögnuðu sigri með lærisveinum sínum í dag. vísir/daníel
Eyjamenn sigruðu Fjölnismenn með fjórum mörkum gegn tveimur í skemmtilegum leik á Hásteinsvelli fyrr í dag og lyftu sér upp í 8. sæti deildarinnar. Fyrir leikinn í dag voru heimamenn í neðsta sæti deildarinnar en þeir voru án sigurs á heimavelli í deild. Tveir lykilleikmenn liðsins voru í banni fyrir uppsöfnuð gul spjöld, þeir Gunnar Þorsteinsson og Eiður Aron Sigurbjörnsson. Jón Ingason og Arnar Bragi Bergsson komu inn í liðið en þeir stóðu sig með mikilli prýði. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Eyjamanna, sá enga ástæðu til þess að breyta leikskipulagi sinna manna eftir gott gengi að undanförnu og hélt því áfram að spila með einn miðjumann fyrir aftan framherja og gerði Atli Fannar Jónsson það mjög vel í dag. Fjölnismenn spiluðu með mjög svipaða uppstillingu og Eyjamenn en tókst þó illa að loka á hlaup miðjumanna upp í fremstu víglínu og varð það þeim að falli í dag. Þeir byrjuðu leikinn þó mikið mun betur og komust verðskuldað yfir eftir flotta sendingu Ragnars Leóssonar sem lék með Eyjamönnum á síðustu leiktíð en þá var Christopher Tsonis mættur í vítateiginn og stýrði boltanum í netið. Þetta virðist hafa vakið Eyjamenn en þeir komust betur og betur inn í leikinn og skoruðu síðan á besta tíma, rétt undir lok fyrri hálfleiks þegar að Jonathan Glenn skoraði glæsilegt skallamark. Glenn stökk þá hærra en Þórður Ingason í marki Fjölnis og stangaði boltann í netið eftir hnitmiðaða sendingu Jóns Ingasonar. Í upphafi seinni hálfleiks virtust bæði lið ætla að standa sterk í öftustu víglínu en Eyjamenn náðu að setja annað mark eftir klafs í teignum þegar að Fjölnismenn náðu ekki að koma boltanum nægilega langt í burtu eftir hornspyrnu Jóns Ingasonar. Arnar Bragi Bergsson átti þá skot að marki sem að Jonathan Glenn kom yfir línuna og varð þannig markahæsti leikmaður deildarinnar. Næstu hornspyrnu leiksins fengu Fjölnismenn en þá barst boltinn inn í teig til Hauks Lárussonar sem kom boltanum á Tsonis sem var einn og óvaldaður í teignum og skoraði því sitt annað mark. Nánast í næstu sókn fékk Ian Jeffs tíma og pláss með boltann og gaf góða sendingu á Atla Fannar Jónsson sem skoraði með bakinu. Á fimm mínútna kafla höfðu liðin því skorað þrjú mörk. Lítið hafði borið á Víði Þorvarðarsyni í leiknum en hann hefur sýnt það í sumar að hann hefur góða spyrnugetu og nýtti þann tíma sem hann fékk fyrir utan teig Fjölnismanna og skaut boltanum í stöngina og inn en þá var útlitiðið orðið svart fyrir gulklædda Fjölnismenn. Fjölnismenn sóttu mikið undir lok leiksins en Abel Dhaira var í góðu stuði í markinu og kom í veg fyrir að gestirnir næðu að minnka muninn. Tveggja marka sigur Eyjamanna því staðreynd og koma þeir sér í þægilega stöðu í deildinni og nálgast Evrópusætið sem talað var um fyrir tímabilið.Sigurður Ragnar Eyjólfsson: Allt á uppleið í Eyjum „Þetta var virkilega ljúft og þetta hífir okkur aðeins upp í töflunni. Við erum búnir að vera að spila mjög vel undanfarið, það er frábært að skora fjögur mörk í dag. Nú erum við búnir að vinna þrjá leiki í röð í deild og bikar, þetta er allt á uppleið hérna í Vestmannaeyjum,“ sagði kampakátur þjálfari ÍBV, Sigurður Ragnar Eyjólfsson, eftir sigur sinna manna í dag. „Nú er mótið hálfnað og við förum eitthvað upp í töflunni. Við ætlum að halda áfram og bæta okkur.“ Jonathan Glenn gerði tvö mörk í dag og hefur verið gríðarlega iðinn við kolann í Pepsi-deildinni undanfarið en hann þurfti að þola mikla gagnrýni í upphafi móts. Hann er ásamt Jeppe Hansen markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar. „Það er markmiðið hans að vera markahæstur í Pepsi-deildinni, hann hefur alla burði til þess, mér finnst hann frábær senter.“ „Við vitum allavega að Þórarinn Ingi kemur, hann mun styrkja liðið mjög mikið, frábær leikmaður og virkilega gott fyrir okkur að endurheimta hann en hann var á láni erlendis og kemur að hjálpa okkur í seinni hluta deildarinnar og í undanúrslitaleik gegn KR í bikarnum. Ef liðið spilar svona áfram hef ég engar áhyggjur,“ sagði Sigurður Ragnar að lokum en hann er víst gríðarlega spenntur fyrir framhaldinu í Vestmannaeyjum.Ágúst Þór Gylfason: Ætlum að styrkja okkur í glugganum „Við erum búnir að dragast ofan í botnbaráttuna, það er nokkuð ljóst, að fá fjögur mörk á sig hérna í Eyjum er ekki nógu gott. Við skorum tvö ágætis mörk en það var ekki nógu mikið skipulag og barátta í seinni hálfleik því miður,“ sagði Ágúst Þór Gylfason, þjálfari Fjölnis, eftir tap sinna manna gegn Eyjamönnum í dag. Fjölnismenn hafa fengið á sig sjö mörk í seinustu tveimur leikjum en vörnin er því orðin nokkuð áhyggjuefni. „Það þarf að skoða þennan varnarleik, við höfum farið með því hugarfari í þessa leiki að halda núllinu, en sjö mörk á okkur. Þetta hefur snúist algjörlega í höndunum á okkur, því miður.“ „Við höfum talað um það í vor að við ætlum að styrkja okkur í glugganum og sjáum hvað setur en það er ekkert í hendi.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Boða til boxveislu þó það sé enn bannað Sport Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Aftur tapaði Real og rauða spjaldið tvisvar á loft Fótbolti Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Körfubolti Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Enski boltinn Fleiri fréttir Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Kominn með nóg af flakkinu Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Snýr aftur heim frá Val: „Nenni ekki að hafa þetta of væmið“ Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Sjá meira