Áfangaskýrsla stjórnarskrárnefndar kynnt í dag 24. júní 2014 10:16 Frá fundinum í dag. Vísir/Pjetur
Áfangaskýrsla stjórnarskrárnefndar verður kynnt á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 10:30. Í nefndinni hefur verið rætt að frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga geti mögulega litið dagsins ljós vorið 2016 og þá verði hægt að leggja það í dóm þjóðarinnar samhliða forsetakosningunum þá um sumarið. Eins og fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 á laugardaginn var skipaði forsætisráðherra, þann 6. nóvember í fyrra, nýja stjórnarskrárnefnd í samræmi við samkomulag allra þingflokka þess efnis en nefndinni stýrir Sigurður Líndal prófessor emeritus.Áfangaskýrslan birt í dag Á níunda fundi stjórnarskrárnefndar var embætti forseta Íslands til umfjöllunar og í fundargerð segir: „Haldið var áfram umfjöllun sem hófst á síðasta fundi, sbr. m.a. bókun í fundargerð þess efnis að SM vinni drög að texta. Sá texti liggur nú fyrir og var sendur nefndarmönnum með tölvupósti 6. maí. (...) Engar athugasemdir bárust.“ SM er Skúli Magnússon dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur en hann situr í nefndinni. Drögin sem um ræðir hafa ekki verið birt, enda vinnuskjal nefndarinnar, en um að ræða texta sem er hluti af nýrri áfangaskýrslu stjórnarskrárnefndar sem kemur út í dag. Í skýrslunni er umfjöllun um þær breytingar sem nefndin telur að gera þurfi á gildandi stjórnarskrá. Þar er m.a. umfjöllun um þörf á sérstöku auðlindaákvæði og ákvæðum um umhverfismál, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Áfangaskýrslunni er ætlað að skapa umræðu um tillögur nefndarinnar og er markmiðið að hefja vinnu við frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga í kjölfarið. Er búist við að þessi vinna geti hafist með haustinu. Ekki er gert ráð fyrir því að unnin verði heildarendurskoðun á stjórnarskránni og er fremur hugmyndin að leggja fram tillögur sem gætu verið umbætur á gildandi stjórnarskrá sem væru þá ákveðnar breytingar á afmörkuðum köflum hennar, samkvæmt upplýsingum fréttastofu.Stjórnarskrárbreytingar í dóm þjóðarinnar Fyrir síðustu alþingiskosningar var frumvarp til stjórnskipunarlaga samþykkt í þinginu og ákvæði bætt við stjórnarskrána um að fram til 30. apríl 2017 sé hægt að samþykkja breytingar á henni með þjóðaratkvæðagreiðslu ef aukinn meirihluti þingsins, eða tveir þriðju hluta þingmanna, samþykkir frumvarp þess efnis áður. Þessi breyting var svo samþykkt þegar nýtt þing kom saman að loknum kosningum. Þetta þýðir að fram til 30. apríl 2017 er hægt að breyta stjórnarskránni með þessum hætti en ekki aðeins á tveimur þingum að undangengnum kosningum, eins og áskilnaður er um í stjórnarskránni. Í stjórnarskrárnefnd hefur verið rætt að frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga geti mögulega litið dagsins ljós vorið 2016 og þá verði hægt að leggja það í dóm þjóðarinnar samhliða forsetakosningunum þá um sumarið. Það verður hins vegar alltaf ákvörðun ríkisstjórnarinnar og síðar löggjafans hvaða stefna verður mörkuð í málinu.
Tengdar fréttir Birta drög að stjórnarskrá sjálfstæðs ríkis Skoskir þjóðernissinnar vilja hafa Bretadrottningu áfram sem þjóðhöfðingja. 17. júní 2014 07:00 Rætt um þjóðaratkvæði um stjórnarskrárbreytingar samhliða forsetakosningum Áfangaskýrsla stjórnarskrárnefndar kemur út á þriðjudag. Í nefndinni hefur verið rætt að frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga geti mögulega litið dagsins ljós vorið 2016 og þá verði hægt að leggja það í dóm þjóðarinnar samhliða forsetakosningunum þá um sumarið. 21. júní 2014 18:51 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira
Birta drög að stjórnarskrá sjálfstæðs ríkis Skoskir þjóðernissinnar vilja hafa Bretadrottningu áfram sem þjóðhöfðingja. 17. júní 2014 07:00
Rætt um þjóðaratkvæði um stjórnarskrárbreytingar samhliða forsetakosningum Áfangaskýrsla stjórnarskrárnefndar kemur út á þriðjudag. Í nefndinni hefur verið rætt að frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga geti mögulega litið dagsins ljós vorið 2016 og þá verði hægt að leggja það í dóm þjóðarinnar samhliða forsetakosningunum þá um sumarið. 21. júní 2014 18:51