Rætt um þjóðaratkvæði um stjórnarskrárbreytingar samhliða forsetakosningum Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. júní 2014 18:51
Áfangaskýrsla stjórnarskrárnefndar kemur út á þriðjudag. Í nefndinni hefur verið rætt að frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga geti mögulega litið dagsins ljós vorið 2016 og þá verði hægt að leggja það í dóm þjóðarinnar samhliða forsetakosningunum þá um sumarið. Hinn 6. nóvember í fyrra skipaði forsætisráðherra nýja stjórnarskrárnefnd í samræmi við samkomulag allra þingflokka þess efnis en nefndinni stýrir Sigurður Líndal prófessor emeritus.Áfangaskýrsla birt á þriðjudag Á níunda fundi stjórnarskrárnefndar var embætti forseta Íslands til umfjöllunar og í fundargerð segir: „Haldið var áfram umfjöllun sem hófst á síðasta fundi, sbr. m.a. bókun í fundargerð þess efnis að SM vinni drög að texta. Sá texti liggur nú fyrir og var sendur nefndarmönnum með tölvupósti 6. maí. (...) Engar athugasemdir bárust.“ SM er Skúli Magnússon dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur en hann situr í nefndinni. Drögin sem um ræðir hafa ekki verið birt, enda vinnuskjal nefndarinnar, en um að ræða texta sem er hluti af nýrri áfangaskýrslu stjórnarskrárnefndar sem kemur út á þriðjudaginn næsta. Í skýrslunni er umfjöllun um þær breytingar sem nefndin telur að gera þurfi á gildandi stjórnarskrá. Þar er m.a. umfjöllun um þörf á sérstöku auðlindaákvæði og ákvæðum um umhverfismál, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Áfangaskýrslunni er ætlað að skapa umræðu um tillögur nefndarinnar og er markmiðið að hefja vinnu við frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga í kjölfarið. Er búist við að þessi vinna geti hafist með haustinu. Ekki er gert ráð fyrir því að unnin verði heildarendurskoðun á stjórnarskránni og er fremur hugmyndin að leggja fram tillögur sem gætu verið umbætur á gildandi stjórnarskrá sem væru þá ákveðnar breytingar á afmörkuðum köflum hennar, samkvæmt upplýsingum fréttastofu.Stjórnarskrárbreytingar í dóm þjóðarinnar Fyrir síðustu alþingiskosningar var frumvarp til stjórnskipunarlaga samþykkt í þinginu og ákvæði bætt við stjórnarskrána um að fram til 30. apríl 2017 sé hægt að samþykkja breytingar á henni með þjóðaratkvæðagreiðslu ef aukinn meirihluti þingsins, eða tveir þriðju hluta þingmanna, samþykkir frumvarp þess efnis áður. Þessi breyting var svo samþykkt þegar nýtt þing kom saman að loknum kosningum. Þetta þýðir að fram til 30. apríl 2017 er hægt að breyta stjórnarskránni með þessum hætti en ekki aðeins á tveimur þingum að undangengnum kosningum, eins og áskilnaður er um í stjórnarskránni. Í stjórnarskrárnefnd hefur verið rætt að frumvarp til nýrra stjórnskipunarlaga geti mögulega litið dagsins ljós vorið 2016 og þá verði hægt að leggja það í dóm þjóðarinnar samhliða forsetakosningunum þá um sumarið. Það verður hins vegar alltaf ákvörðun ríkisstjórnarinnar og síðar löggjafans hvaða stefna verður mörkuð í málinu.
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Barist á hafi úti Erlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Sjá meira